
Rými
Hjá Rými starfar samhentur hópur starfsmanna með áratuga reynslu af ráðgjöf, hönnun, þjónustu og uppsetningum á sviðum verslunarinnréttinga, lagerbúnaðar, skjalageymslutækni og búnaði fyrir iðnað, verkstæði,sveitarfélög og opinberar stofnanir. Fyrirtækið okkar var stofnað þann 6. maí 1936.
Við erum í samstarfi við um 60 birgja í yfir 20 löndum um allan heim. Samkeppnisforskot okkar felst meðal annars í góðum samskiptum við okkar birgja, þekkingu og þjónustulund starfsmanna og mjög góðu skipulagi í flutningum og lagerstýringu sem tryggir lagan kostnað við aðföng. Forskot okkar felst lika í þeim heildarlausnum sem við bjóðum á öllum ofangreindum sviðum.
Rými er auk eigin vinnu, í samstarfi við hönnuði, teiknistofur, smiði og verkstæði sem annast undirbúning verkefna, sérsmíði úr timbri og stáli auk sprautunar og uppsetningar.
Rými býður þjónustusamninga um reglubundið eftirlit með lyftubúnaði og hillukerfum.

Framtíðarstarf hjá RÝMI
Starf í vöruhúsi hjá RÝMI
Við leitum að ábyrgum og drífandi einstaklingi til starfa í vöruhúsi hjá RÝMI.
Um er að ræða starf sem krefst sjálfstæðra vinnubragða, góðrar skipulagshæfni og hæfni til að halda fókus undir álagi. Viðkomandi þarf að vinna markvisst, sýna frumkvæði og taka ábyrgð á sínum verkefnum.
Mikilvægt er að þú:
- Vinnir af nákvæmni og tryggir gæði í öllum verkefnum
- Sýnir fagmennsku í starfi og góð samskipti
- Leggir þitt af mörkum til að viðhalda öflugu og samheldnu teymi
- Um er að ræða fullt starf
Vinnutími: 08:00–16:00 eða 09:00–17:00
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tínsla og afgreiðsla pantana
- Móttaka á vörum í vöruhús
- Tæming á gámum
- Almenn lagerstörf
- Halda vöruhúsi/útisvæði hreinu og snyrtilegu
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Lyftararéttindi kostur
- Bílpróf er kostur
- Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
- Góð íslenskukunnátta
- Góð enskukunnátta
Auglýsing birt15. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Gylfaflöt 2-4 2R, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tölvukunnáttaÁreiðanleikiBirgðahaldDrifkrafturFagmennskaFrumkvæðiHandlagniLagerstörfLíkamlegt hreystiMannleg samskiptiÖkuréttindiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSnyrtimennskaStundvísiTeymisvinnaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Framtíðarstarf í vöruhúsi Parlogis
Parlogis

Flokkstjóri í Þjónustumiðstöð
Sumarstörf - Kópavogsbær

Starf í afgreiðslu vöruhúss Innnes
Innnes ehf.

Hellulagnir - Pavers
Garðaþjónusta Sigurjóns ehf

Lagerstarfsmaður
ÍAV

Sumarstarf - tímabundin ráðning
Zara Smáralind

Útkeyrsla og lager
Autoparts.is

Starfsfólk í Straumsvík
HRT þjónusta ehf.

Sumarstarfsfólk óskast á Grundartanga
HRT þjónusta ehf.

Starfsmaður á lager og í verslun
Tekk

Flokkstjórar hjá samstarfsfélögum - Vinnuskóli Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær

Flokkstjórar í Vinnuskóla Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær