Snælandsskóli
Snælandsskóli
Snælandsskóli

Enskukennari óskast í hlutastarf

Snælandsskóli er heildstæður um 480 nemenda grunnskóli staðsettur í Fossvogsdal. Skólinn byggir á langri hefð fyrir framsæknu og árangursríku skólastarfi þar sem áhersla hefur verið lögð á þátttöku í margs konar þróunar- og nýbreytniverkefnum í gegnum tíðina. Skólinn er Grænfána skóli í samvinnu við Landvernd, skólinn styðst við Olweusaráætlunina gegn einelti og þá er skólinn líka Réttindaskóli Unicef.

Einkunnarorð skólans eru: Viska – virðing – víðsýni – vinsemd.

Starfssvið og helstu verkefni

Snælandsskóli óskar eftir enskukennara á unglingastig í hlutastarf (um 90% stöðuhlutfall, 24 kennslustundir) frá skólabyrjun til áramóta vegna fæðingarorlofs.

Stærsti hluti kennslunar er enskukennsla en einnig er um að ræða íslenskukennslu í einum árgangi og valtímar í unglingadeild.

Menntunar- og hæfniskröfur

Grunnskólakennari. Sérhæfing í tungumálakennslu er æskileg.

Kennslureynsla og/eða reynsla af starfi með börnum og unglingum er æskileg.

Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum.

Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi.

Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði.

Áhugi á að vinna með fjölbreytta nemendahópa.

Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans.

Góð færni í íslensku er nauðsynleg.

Ráðningartími og starfshlutfall

Ráðið verður í stöðuna frá ágúst 2026 og til áramóta. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Um er að ræða ca. 90% stöðuhlutfall, 24 kennslustundir á viku.

Aðrar upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila inn sakavottorði.

Tekið verður mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar við ráðningu í starfið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynjar M. Ólafsson skólastjóri í síma 860-3526 eða netfangið [email protected].

Tekið er á móti starfsumsóknum í gegnum ráðningarvefinn alfred.is.

Fríðindi í starfi

Starfsfólk hjá Kópavpgsbæ fær frítt í sundlaugar Kópavogs.

Auglýsing birt13. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Víðigrund
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar