

Embætti skrifstofustjóra skrifstofu skóla- og íþróttamála
Leik- og grunnskólar gegna lykilhlutverki í farsæld samfélagsins og á þessum skólastigum er lagður grunnur að þroska barnanna okkar og framtíð þeirra mótuð. Sterkt og faglegt skólastarf stuðlar að jöfnum tækifærum og samfélagslegri þátttöku nemenda. Virkt íþróttastarf eflir virkni og stuðlar að vellíðan barna auk þess að hafa jákvæð áhrif á námsárangur og lífsgæði þeirra.
Með markvissri stefnumótun og samvinnu er hægt að skapa umhverfi þar sem fjölbreyttir styrkleikar nemenda fá að njóta sín. Mennta- og barnamálaráðuneytið leitar að fyrirliða til að leiða starf nýrrar skrifstofu skóla- og íþróttamála. Viðkomandi fær tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótun menntunar og íþrótta og þar með auka velferð barna á þessum skólastigum.
Skrifstofustjóri skóla- og íþróttamála er hluti af stjórnendateymi ráðuneytisins og heyrir beint undir ráðuneytisstjóra. Ráðuneytið ætlar sér að verða leiðandi í verkefnamiðuðu vinnulagi og árangursdrifinni nálgun á viðfangsefni.
Skrifstofustjóri ber ábyrgð á að leiða faglegt starf á skrifstofunni og stýra daglegri framkvæmd starfa gagnvart ráðuneytisstjóra, sbr. 17. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011.
Skrifstofa skóla- og íþróttamála vinnur í umboði mennta- og barnamálaráðherra að stefnumótun og framgangi stefnumála ráðherra og ríkisstjórnar varðandi menntamál á sviði leik- og grunnskóla, tónlistar- og annarra listaskóla, sem og íþróttamála. Skrifstofan vinnur að undirbúningi, mótun og útfærslu stefnumála eins og þau birtast í sértækum stefnum, lögum, fjármálaáætlunum og fjárlögum. Skrifstofan hefur yfirumsjón með innleiðingu stefnumála og annarra verkefna á málefnasviði hennar í samráði við aðrar skrifstofur og undirstofnanir ráðuneytisins. Þá vinnur skrifstofan að mati, endurskoðun og breytingum á stefnumálum.
Skrifstofustjóri hefur yfirumsjón með verkefnum skrifstofunnar og stýrir forgangsröðun í samræmi við verklag ráðuneytisins. Hann leiðir samstarf við aðrar skrifstofur, önnur ráðuneyti, haghafa og aðra innlenda og erlenda aðila. Skrifstofustjóri annast almennan rekstur skrifstofunnar og ber ábyrgð á að árlegt uppgjör sé í samræmi við fjárhagsáætlun. Þá ber hann ábyrgð því að skrifstofan sinni stjórnsýslulegum skyldum sínum og að stefnumarkandi ákvörðunum sé hrint í framkvæmd.
-
Háskólagráða sem nýtist í starfi er nauðsynleg.
-
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni sem endurspeglast m.a. í drifkrafti, frumkvæði, farsælli reynslu af breytingastjórnun, stefnumótun og uppbyggingu liðsheildar er nauðsynleg.
-
Góð greiningarhæfni, lausnamiðuð hugsun og geta til að vinna með flókin mál á skipulegan og markvissan hátt er nauðsynleg.
-
Víðtæk þekking á starfi og verkefnum leik- og/eða grunnskóla er nauðsynleg.
-
Þekking á íþróttastarfi er æskileg.
-
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg. Í því felst m.a. mikilvægi þess að skynja hvert hlutverk ráðuneyta er í lýðræðissamfélagi sem og að búa yfir þeirri pólitísku næmni að hafa skilning á hlutverki ráðuneyta sem skrifstofu ráðherra.
-
Mjög gott vald á íslensku og ensku er nauðsynlegt og verður að endurspegla framúrskarandi hæfni í að tjá sig í ræðu og riti. Norðurlandamál er kostur.
-
Þekking á alþjóðlegum straumum og þróun í menntamálum er æskileg.
Ef þetta á við um þig og þú býrð jafnframt yfir góðri þjónustulund, brennandi metnaði fyrir betri skólum og íþróttastarfi með hag barna að leiðarljósi þá hvetjum við þig til að sækja um.
Íslenska