
Lyfjastofnun
Hlutverk Lyfjastofnunar er að tryggja öryggi landsmanna með greiðu aðgengi að lyfjum og lækningatækjum, faglegri þjónustu og hlutlausri upplýsingagjöf byggðri á nýjustu þekkingu. Helstu hlutverk hennar eru að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með lyfjafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna um 75 starfsmenn. Lyfjastofnun leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, starfsþróun og framfylgir stefnu um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta. Sjá nánari upplýsingar um Lyfjastofnun á vef stofnunarinnar www.lyfjastofnun.is.
Eftirlitsmaður
Lyfjastofnun auglýsir eftir öflugum eftirlitsmanni til starfa á eftirlitssviði. Eftirlitsmaður sinnir eftirliti m.a. með lyfsölu, heilbrigðisstofnunum og dýralæknum ásamt öðrum eftirlitshlutverkum sem undir sviðið heyrir.
Leitað er að öflugum einstaklingi til að sinna fjölbreyttu og krefjandi starfi. Starfshlutfall er 100%.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Eftirlit með lyfsölu, heilbrigðisstofnunum og dýralæknum
- Eftirlit með ávana- og fíknilyfjum, lyfjaauglýsingum, innflutningi einstaklinga á lyfjum til eigin nota ásamt öðru eftirliti sem undir deildina heyrir
- Innleiðing nýrrar dýralyfjalöggjafar
- Móttaka, meðhöndlun og eftirfylgni gæðamála þ.m.t. atvikatilkynningar frá eftirlitsþegum, innkallanir, og tilkynningar
- Upplýsingagjöf til hagsmunaaðila
- Svörun erinda og fyrirspurna frá hagsmunaaðilum
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking og/eða reynsla á sviði framleiðslu, dreifingar eða sölu lyfja er kostur
- Reynsla af gæðamálum er kostur
- Mjög góð samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
- Góð tölvuhæfni, nákvæmni, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Teymisvitund, frumkvæði og faglegur metnaður
Auglýsing birt28. maí 2021
Umsóknarfrestur14. júní 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Vínlandsleið 12-14, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almannatengsl (PR)FrumkvæðiJákvæðniMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðViðskiptasambönd
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)

Virkniþjálfi - starfskraftur í dagþjálfun
Hlíðabær

Þjónustu- og gæðastjóri | Guest Experience & Quality Manager
Íslandshótel

Viðskiptastjóri hjá Vistor
Vistor

QA On The Floor Specialist
Alvotech hf

QC Strategic Operation Lead
Alvotech hf

Senior QA Analyst
Fenris Creations

Sérfræðingur í gæðatryggingardeild (QA Specialist)
Kerecis