
Landsréttur
Hinn 1. janúar 2018 tóku gildi ný lög um dómstóla. Með þeim var gerð sú breyting að dómstigin, sem áður voru tvö, urðu þrjú með tilkomu sérstaks millidómstigs. Nýr dómstóll, Landsréttur, var þá settur á fót sem millidómstig og tók dómstóllinn til starfa 1. janúar 2018.
Til Landsréttar er unnt að skjóta úrlausnum héraðsdómstólanna átta og verða úrlausnir hans endanlegar í flestum málum. Í sérstökum tilvikum og að fengnu leyfi Hæstaréttar Íslands má skjóta niðurstöðum Landsréttar til Hæstaréttar.
Landsréttur er staðsettur á höfuðborgarsvæðinu, að Vesturvör 2, 200 Kópavogi, en tekur til landsins alls.
Fimmtán dómarar eiga sæti við Landsrétt og taka þrír dómarar þátt í meðferð máls fyrir dómi að jafnaði, með þeim undantekningum sem mælt er fyrir um í lögum um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála.
Forseti Landsréttar er Hervör Þorvaldsdóttir.

Dómvörður
Landsréttur auglýsir lausa til umsóknarstöðu dómvarðar í fullt starf.
Starfið felur í sér fjölþætt öryggis- og þjónustuhlutverk við dómstólinn.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Öryggisgæsla og þjónusta við þá sem erindi eiga í dómhúsið
-
Umsjón og eftirlit með öryggiskerfum og öðrum öryggismálum hússins
-
Almenn húsvarsla, þar með talið minni háttar viðhald
-
Umsjón með dómsölum, þar á meðal tæknileg úrvinnsla er varðar hugbúnað og vélbúnað
-
Innkaup á rekstrarvörum
-
Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Iðnmenntun er kostur sem og önnur menntun sem nýtist í starfi
-
Reynsla af löggæslu- eða öryggisstörfum er kostur
-
Líkamlegt og andlegt atgervi til að mæta óvæntum uppákomum í starfseminni
-
Hæfni í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund og sveigjanleiki
-
Góð íslenskukunnátta
-
Almenn tölvufærni
Auglýsing birt24. febrúar 2026
Umsóknarfrestur13. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vesturvör 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Almenn umsókn hjá Fagkaupum
Fagkaup ehf

Verkefnastjóri / Project Manager
Fjárfestingafélag - Venture Capital Firm

Húsvörður | Building caretaker
Íslandshótel

Ferðaráðgjafi og Viðskiptaþróun í Hópadeild
Kilroy

Fjármála- og stjórnsýslusvið: auglýsir tímabundið afleysinga starf
Dalvíkurbyggð

Join Our Aviation Security Team at Keflavík Airport - Seasonal Job
Öryggismiðstöðin

Starfskraftur afgreiðslu á Akureyri
Frumherji hf

Sumarstarf - Fulltrúi í Þjónustumiðstöð
Sjúkratryggingar Íslands

Viðskiptastjóri
Torcargo

Skrifstofustjóri í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Starf í Umboðs- og stórflutningadeild
Torcargo

Þjónusturáðgjafi
Félagsbústaðir