Leikskólinn Sólborg
Leikskólinn Sólborg
Leikskólinn Sólborg

Döff starfsmaður óskast

Leikskólinn Sólborg óskar eftir starfsmanni með íslenskt táknmál að móðurmáli.


Sólborg er 5 deilda leikskóli við Vesturhlíð 1, 105 Reykjavík. Sérstaða leikskólans felst í sameiginlegu uppeldi og menntun fatlaðra og ófatlaðra barna og unnið er eftir hugmyndafræði náms án aðgreiningar. Lögð er áhersla á að viðurkenna og virða margbreytileikann í banahópnum. Sólborg hefur sérhæft sig í kennslu og námusumhverfi heyrnarskertra barna og sinnir ráðgjöf til annarra leikskóla á landinu á því sviði.


Helstu verkefni og ábyrgð:


Að vera málfyrirmynd í leik og starfi.
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna undir stjórn deildastjóra.
Hæfniskröfur:


Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Hér má sjá kynningarmyndband um skólann: https://vimeo.com/321955748

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Starfið er laust nú þegar, eða eftir samkomulagi. Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Guðrún Jóna Thorarensen, leikskólastjóri
Sími: 618-8937

Auglýsing birt15. nóvember 2019
Umsóknarfrestur16. desember 2019
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Vesturhlíð 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar