

Delivery Lead
Hugbúnaðarþróun Orkuveitunnar leitar að Delivery Lead sem vill taka þátt í tæknilegri umbreytingu samstæðunnar. Hlutverk okkar er að þróa og nútímavæða hugbúnaðarlausnir fyrir Orkuveituna og dótturfélög hennar, sameina þróunarferla og byggja upp öflugt og fyrirsjáanlegt útgáfuferli sem styður við hraða, gæði og stöðugar umbætur.
Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af því að innleiða vinnubrögð, skapa skýra umgjörð utan um þróunarverkefni og fylgja breytingum eftir þar til þær eru orðnar hluti af daglegu starfi.
-
Innleiða og festa í sessi skýr og samræmd vinnubrögð: Agile ceremonies, Definition of Done, code reviews, QA og útgáfuferli.
-
Halda utan um Jira sem stjórntæki og tímaskráningu sem staðlað vinnulag, og tryggja að stöður endurspegli raunveruleikann.
-
Samræma vinnu milli teyma, arkitekta, platform og verktaka, eskalera tafir tímanlega og keyra mál áfram þar sem þau festast.
-
Vinna með mæligögn úr Jira til að knýja stöðugar umbætur á hraða, gæðum og fyrirsjáanleika.
-
Tryggja að off-shore teymi fylgi sömu reglum og ferlum og innanhúss teymi.
Enska
Íslenska