
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.500 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Kjörorð Fjarðabyggðar er: Þú ert á góðum stað.
Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.

Deildastjóri leikskólinn Lyngholt
Lyngholt er 94 nemenda skóli sem skiptist á 6 deildar. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Skólinn er staðsettur í nýlegu húsnæði við Heiðarveg. Grunnskóli Reyðarfjarðar er í næsta nágrenni við skólann og á milli stofnana er mikið og gott samstarf. Lyngholt vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Deildarstjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og uppeldisstefnu Fjarðabyggðar.
- Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi leikskólans og ber ábyrgð á deildarstarfi.
- Deildarstjóri annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
- Deildarstjóri hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
- Deildarstjóri ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
- Deildarstjóri situr starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
- Deildarstjóri skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. dagleg samskipti og foreldraviðtöl.
- Önnur verkefni sem skólastjóri felur honum og skilgreind eru á ábyrgðarsviði hans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu í leikskóla. (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af starfi með börnum
- Þekking á uppeldisstefnum Fjarðabyggðar er æskileg.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæmi og skipulagshæfni
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
- Vinnutímastytting
- Starfsmenn fá 50.000 kr. greiðslur á mánuði fyrir að matast með börnum.
Auglýsing birt3. júní 2024
Umsóknarfrestur1. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Heiðarvegur 7, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Kennari óskast á miðstig í Snælandsskóla
Snælandsskóli

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Leikskólakennari óskast
Sveitarfélagið Strandabyggð

Skólaliði í Grundaskóla
Grundaskóli

Leikskólakennari - leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Garðasel

Leikskólinn Naustatjörn: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Akureyri

Leikskólinn Naustatjörn: starfsmaður í leikskóla
Akureyri

Umsjónarkennari á yngsta stigi – Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri í Leikskólann Lundarsel-Pálmholt
Akureyri

Glerárskóli: Deildarstjóri stoðþjónustu
Akureyri