Urðarhóll
Urðarhóll
Urðarhóll

Deildarstóri í Urðarhól

Deildarstjóri ber ásamt stjórnendum leikskólans ábyrgð á faglegum gæðum, ásamt þróun og
nýbreytni í starfi leikskólans. Hann á að tryggja að sérhvert barn á deildinni fái umönnun, nám og kennslu við hafi. Deildarstjóri annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar. Deildarstjóri stendur vörð um réttindi barna og stuðlar að því að barnið njóti ávallt bestu þjónustu sem möguleg er á hverjum tíma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  •  Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
  •  Tekur þátt í gerð skólanámskrár, starfsáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og
     þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  •  Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og starfsáætlun leikskólans á deildinni.
     Sér um að einstaklingsnámskrám sé framfylgt og þær endurmetnar í samráði við
     sérkennslustjóra.
  •  Skipuleggur samvinnu við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við leikskólastjóra 
  • Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl
  • Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi er fram fer á deildinni og ekki varðar trúnað gagnvart öðrum börnum og
    foreldrum/forráðamönnum þeirra.
  •  Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
    Ber ábyrgð á að leitað sé samþykkis foreldra/forráðamanna barns, áður en leitað er aðstoðar annarra sérfræðinga
  •  Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
  •  Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
  •  Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra.
  •  Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans
  •  Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur

Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.

Auglýsing birt28. maí 2026
Umsóknarfrestur11. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Kópavogsbraut 19, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar