MÍT menntaskóli í tónlist
MÍT menntaskóli í tónlist
MÍT menntaskóli í tónlist

Deildarstjóri rytmískrar deildar MÍT

Menntaskóli í tónlist auglýsir eftir deildarstjóra rytmískrar deildar í 50% starf frá 1. janúar. Meðal helstu verkefna eru fagleg umsjón með rytmískri deild skólans (popplínubrautum og djassbrautum) í samvinnu við skólameistara, stefnumótun og þróun skólastarfs, skipulag og framkvæmd prófa og tónleika. Deildarstjóri hefur einnig yfirumsjón með hljómsveitum og samspilshópum, kynningu á skólastarfinu, inntökuprófum í rytmískri deild ásamt fleiri verkefnum í samráði við skólameistara. Deildarstjóri sinnir jafnframt námsráðgjöf, upplýsingagjöf og samskiptum við nemendur og kennara í rytmískri deild.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði rytmískrar tónlistar
Leyfisbréf sem kennari
Reynsla af tónlistarkennslu á framhaldsstigi
Þekking á íslensku tónlistarlífi og skólakerfi
Samskiptahæfni og jákvætt viðmót
Góð skipulagshæfni
Víðsýni og áhugi á skólaþróun jafnt á sviði djass-, popp- og annarrar rytmískrar tónlistar
Góð tölvukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg umsjón með rytmískri deild í samvinnu við skólameistara.
Stefnumótun og þróun skólastarfs
Skipulag og framkvæmd prófa fyrir rytmíska deild
Samskipti og upplýsingagjöf til nemenda og kennara í rytmískri deild
Umsjón með inntökuprófum og innritun í rytmíska deild
Umsjón og skipulag tónleika, rytmísk deild
Kynning tónleika í rytmískri deild
Seta í prófum og prufuspilum rytmískrar deildar
Samspilshópar, skipulag og umsjón
Auglýsing birt21. september 2022
Umsóknarfrestur16. október 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Rauðagerði 27, 108 Reykjavík
Skipholt 33, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar