Kvíslarskóli
Kvíslarskóli
Kvíslarskóli

Deildarstjóri náms og kennslu í Kvíslarskóla

Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum? Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi Kvíslarskóla í Mosfellsbæ. Kvíslarskóli er unglingaskóli með 7.-10. bekk sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Umsóknarfrestur er til og með 28. ágúst. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Heimir Eyvindarson skólastjóri í síma 525-0700. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Ráðið er í öll störf óháð kyni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Deildarstjóri náms og kennslu er hluti af stjórnunarteymi skólans og tekur virkan þátt í að skipuleggja skólastarf, stjórna og eiga dagleg samskipti við nemendur, foreldra og samstarfsfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara með áherslu á grunnskólastig
  • Framhaldsmenntun í stjórnun er æskileg sem og reynsla af stjórnun
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Áhugi á starfsþróun, nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
  • Reynsla af Leiðsagnarnámi og Uppbyggingarstefnunni er æskileg


Auglýsing birt11. ágúst 2025
Umsóknarfrestur28. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skólabraut 1A, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar