Deildarstjóri - Jöklaborg
Deildarstjóri óskast til starfa í leikskólann Jöklaborg sem staðsettur er í Seljahverfi, Jöklaseli 4, 109 Reykjavík.
Jöklaborg er fimm deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á að skapa hlýlegt lærdómssamfélag barna og fullorðinna. Leiðarljós leikskólans er: Gleði – Virðing – Sköpun. Unnið er meðal annars eftir kenningum Bronfernbrenners og Berit Bae um samskipti og áhersla lögð á sjálfseflingu og félagsfærni sem eru tveir af grundvallarþáttum Menntastefnu Reykjavíkurborgar.
Aðrir áhersluþættir starfsins eru meðal annars leikur, læsi, sköpun og lýðræði. Námskrá Jöklaborgar, myndband og fjölmargar aðrar upplýsingar um leikskólann má finna á netinu: www.joklaborg.is
Starfið er laust nú þegar.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf kennara.
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum.
Hæfileiki í samskiptum, að sjá það jákvæða og það besta í fólki og virkja fólk til skapandi vinnubragða og frumkvæðis.
Frumkvæði og metnaður.
Sjálfstæð, skipulögð og fagleg vinnubrögð.
Góð íslenskukunnátta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra og námskrá leikskólans.
Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni.
Stjórnun og ábyrgð á skipulagningu, símati og endurmati á starfi deildarinnar og leikskólans.
Handleiðsla og ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og starfáætlun á deildinni.
Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu og foreldrasamstarfi.
Að taka þátt í verkefnum er tengjast starfi leikskólans og samstarfi við nærsamfélagið.
Ábyrgð á að barnið fái stuðning og kennslu við nám sitt og áhuga.
Fríðindi í starfi
Hlífðarfatnaður, samgöngusamningur, íþróttastyrkur, sundkort, menningarkort og hádegismatur