
Urðarhóll
Heilsuleikskólinn Urðarhóll er sex deilda leikskóli og er staðsettur við Kópavogsbraut 19 og starfræktur í þremur húsum. Í heildina dvelja um 130 börn í skólanum.
Hugmyndafræðin sem unnið er eftir í Heilsuleikskólanum Urðarhóli er samkvæmt Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur, lögum um leikskóla, Aðalnámsskrá leikskóla, Námskrá Kópavogs, Umhverfisstefnu leikskóla Kópavogs, Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna, Heimsmarkmiðin og heiltæka skólastefna. Skólanámsskrá Heilsuleikskólans Urðarhóls byggir á því að hafa heilsu og vellíðan barnanna í fyrirrúmi. Markmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu og sköpun.

Deildarstjóri í Urðarhóli
Heilsuleikskólinn Urðarhóll óskar eftir deildarstjóra á eldri deild.
Urðarhóll er heilsuleikskóli í vesturbæ Kópavogs.
Starf leikskólans byggist á Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur.
Markmið skólans er að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu og sköpun.
Á Urðarhóli er samheldinn hópur starfsmanna sem hefur unnið lengi saman og leitar að jákvæðum einstaklingi í hópinn. Starfsmannahópurinn er fjölbreyttur og skemmtilegur þar sem 50% þeirra eru leikskólakennarar, 20% háskólamenntaðir og 30% leiðbeinendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun að lágmarki 90 einingar og leyfisbréf kennara.
Reynsla af vinnu með börnum.
Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
Reynsla af stjórnun æskileg
Sjálfstæði, tölvulæsi og metnaður í vinnubrögðum.
Góð íslenskukunnátta skilyrði.
Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum.
Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl.
Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi er fram fer á deildinni.
Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.
Auglýsing birt4. maí 2022
Umsóknarfrestur15. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Kópavogsbraut 19, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskólinn Barnaborg í Þingeyjarsveit leitar að leikskólakennara
Leikskólinn Barnaborg, Þingeyjarsveit

Kópahvoll óskar eftir kennurum vegna stækkunar
Kópahvoll

Leikskólakennari í Tjörn
Leikskólinn Tjörn

Leikskólinn Tjörn óskar eftir leikskólakennara til starfa.
Leikskólinn Tjörn

Leikskólakennari óskast í allt að 100% starf
Leikskólinn Ylur

Sérkennari/Þroskaþjálfi/Leikskólakennari - Leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Deildarstjóri - HOLT
Leikskólinn Holt

Grunnskólinn í Borgarnesi - Heimilisfræðikennari óskast til starfa út skólaárið 2026-2027
Borgarbyggð

Leikskólakennari í Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg

Grenivíkurskóli auglýsir eftir kennara
Grýtubakkahreppur

Leikskólakennari óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólinn Furuskógur