Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Deildarstjóri í Búsetuþjónustu

Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.

Við leitum að öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.

Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónstu og öflugs vinnuumhverfis.

Erum við að leita að þér?

Um er að ræða afleysingarstarf í eitt ár.

Deildarstjóri í búsetuþjónustu er starfsmaður félagsþjónustu sveitarfélagsins Borgarbyggðar. Helsu viðfangsefni er þjónusta við fatlaða. Starfið er unnið samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og öðrum þeim lögum og reglugerðum sem við eiga ásamt reglum Borgarbyggðar um þjónstu sveitarfélagsins.

Menntunar- og hæfniskröfur
Þroskaþjálfamenntun og starfsleyfi sem þroskaþjálfi, eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af starfi við félagsþjónustu, málefnum fatlaðra eða sambærileg störf mikilvæg
Samstarfs- og skipulagshæfileikar
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Þjónustulund og jákvæðni í starfi
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Færni í mannlegum samskiptum
Helstu verkefni og ábyrgð
Deildarstjóri leysir forstöðumann af í fjarveru hans
Tekur virkan þátt í daglegum rekstri deildarinnar
Leiðbeinir og aðstoðar þjónustuþega við athafnir daglegs lífs eftir því sem við á og tómstundaiðju
Sinnir faglegum verkefnum s.s. þjónustuáætlanir fyrir þjónustuþega
Fylgist með heilsu og vellíðan þjónustuþega
Sinnir öðrum störfum sem honum eru falin af yfirmanni
Auglýsing birt18. október 2021
Umsóknarfrestur27. október 2021
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgarbraut 14, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þroskaþjálfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar