Leikskólinn Álftaborg
Leikskólinn Álftaborg
Leikskólinn Álftaborg

Deildarstjóri í Álftaborg

Við í Álftaborg erum að leita að deildarstjóra í teymið okkar.

Álftaborg er 4 deilda leikskóli þar sem aðaláherslur eru; lífsleikni, Vináttuverkfeni Barnaheilla, sjálfbærni, fjölmenning og læsi. Einkunnarorð leikskólans eru; virðing, gleði og umhyggja. Lögð er áhersla á jákvæð og góð samskipti og samvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfslýsing

Stjórnun og skipulagning:

Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.

Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni

Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.

Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.

Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.

Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra.

Uppeldi og menntun:

Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og ársáætlun leikskólans á deildinni.

Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum.

Ber ábyrgð á að meðferðaráætlunum sérfræðinga vegna einstakra barna sé framfylgt.

Foreldrasamvinna:

Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl.

Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi er fram fer á deildinni og ekki varðar trúnað gagnvart öðrum börnum og foreldrum/forráðamönnum þeirra.

Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.

Ber ábyrgð á að leitað sé samþykkis foreldra/forráðamanna barns, áður en leitað er aðstoðar annarra sérfræðinga.

Annað:

Skipuleggur samvinnu við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við leikskólastjóra.

Situr starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.

Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur

Leyfisbréf til kennslu á leikskólastigi.

Reynsla af stjórnun æskileg.

Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.

Lipurð og hæfni í samskiptum.

Sjálfstæði og frumkvæði.

Reynsla af starfi í leikskólum nauðsynleg.

Hreint sakavottorð.

Fríðindi í starfi

Stytting vinnuviku

Sundkort og heilsustyrkur

Bókasafnskort og frítt á söfn með menningarkortinu

Samgöngustyrkur

Auglýsing birt2. júlí 2026
Umsóknarfrestur16. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Safamýri 30, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar