Fjallabyggð
Fjallabyggð

Deildarstjóri fræðslu- og frístundamála Fjallabyggðar

Velferðarsvið Fjallabyggðar óskar eftir öflugum og skapandi leiðtoga í starf deildarstjóra fræðslu- og frístundamála. Í sveitarfélaginu eru tveir leikskólar, tveir grunnskólar og tveir tónlistarskólar. Velferðarsvið er samþætt þjónustueining og undir það heyrir félags-, frístunda- og fræðsluþjónusta.

Starfið felur í sér umsjón með framkvæmd laga um fræðslu- og frístundamál sem og önnur verkefni sem tilheyra málaflokkunum og sveitarstjórn hefur samþykkt.

Næsti yfirmaður deildarstjóra er sviðsstjóri velferðarsviðs.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegt utanumhald með starfsemi fræðslu – og frístundadeildar.
  • Aðkoma að gerð fjárhagsáætlana í samvinnu við sviðsstjóra
  • Eftirfylgni með lögum og reglugerðum um leik-, grunn- og tónlistaskóla.
  • Samskipti og samstarf með skólastjóra grunnskóla og leikskóla varðandi málefni skólanna.
  • Eftirlit og umsjón með aðbúnaði, skipulagi og árangri skólastarfs í samvinnu við skólastjórnendur.
  • Ráðgjöf og þátttaka í stefnumótun og eftirfylgni stefnumótunar
  • Tekur þátt í uppbyggingu og skipulagningu verkefna sem heyra undir málaflokkinn
  • Umsjón með Frístund, frístundastarfi fyrir 1. – 4. bekk í samstarfi við grunnskólann, íþróttafélög og tónlistarskólann
  • Umsjón með félagsmiðstöðinni Neon
  • Samstarf og samskipti við íþróttafélög varðandi frístundastarf barna og unglinga
  • Ýmis önnur verkefni og samstarf til samræmis við þjónustumarkmið
  • Teymisvinna þvert á deildir og stofnanir sveitarfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla í opinberri stjórnsýslu er æskileg.
  • Þekking á sviði leik- og grunnskóla
  • Leiðtogahæfni og góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku.
  • Metnaður til að ná árangri í starfi
Auglýsing birt17. nóvember 2025
Umsóknarfrestur15. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Gránugata 24, 580 Siglufjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar