
Vesturbyggð
Vesturbyggð er á sunnanverðum Vestfjörðum og samanstendur af þremur þéttbýliskjörnum, Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal og auk þess sveitir þar í kring. Einstök náttúrufegurð prýðir sunnanverða Vestfirði og hér er ótal margt að sjá og upplifa. Í Vesturbyggð er öflugt atvinnulíf, fjölbreytt þjónusta og gott mannlíf. Góð þjónusta er í sveitarfélaginu, öflugt æskulýðsstarf, leikskólar, íþróttasvæði, verslanir, sjúkrahús, verkstæði, vélsmiðjur, trésmíðaverkstæði, bíó, ferðaþjónusta og fl. Náttúrufegurð er mikilfengleg, en m.a. Rauðisandur og Látrabjarg er innan sveitarfélagsins. Möguleikar til útivistar, félagsstarfa, íþrótta og afþreyingar eru fjölmargar. Vesturbyggð tekur vel á móti nýjum íbúum!

Deildarstjóri - Araklettur
Leitað er eftir deildarstjóra í 100% stöðu, við leikskólann Araklett á Patreksfirði.
Á leikskólanum eru núna 42 börn en er áformað að stækka leikskólann í vetur og gera pláss fyrir a.m.k. 20 börn í viðbót. Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur, gleði og vinátta og endurspegla þau stefnu leikskólans þar sem við vinnum með Uppeldi til ábyrgðar sem okkar uppeldis- og agastefnu, en sú stefna stuðlar að jákvæðum samskiptum, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og þroskar jákvætt gildismat. Við lítum á leikinn sem náms- og þroskaleið barnsins svo við gefum honum góðan tíma og nægt rými til að þróast. Við nýtum okkur Lubba til að efla málþroskann og Vináttu/Blæ til að efla félagsþroskann og er þekking á þeim kostur í starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfi til að nota starfsheitið kennari
Sérhæfð hæfni á leikskólastigi
Reynsla af deildarstjórn á leikskóla er kostur
Frumkvæðni, stjálfstæði og skipulögð vinnubrögð, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu Vesturbyggðar
Sér um daglegan rekstur deilarinnar, sem felst m.a. í verkstjórn á deildinni, skipulagningu, famkvæmd og mati starfsins
Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og ársáætlun leikskólans á deildinni
Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum
Vinnur í nánu samstarfi við foreldra / forráðamenn barnanna
Auglýsing birt23. september 2022
Umsóknarfrestur9. október 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Aðalstræti 75, 450 Patreksfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast
Leikskólinn Skerjagarður

Glerárskóli: Deildarstjóri stoðþjónustu
Akureyri

Frístundaráðgjafi óskast í Molann - miðstöð unga fólksins
Molinn - miðstöð unga fólksins

Leikskólinn Akrar -leikskólakennari
Leikskólinn Akrar

Aðstoðarleikskólastjóri - Leikskólinn Vesturkot
Hafnarfjarðarbær

Leikskólinn Lækur óskar eftir leikskólakennara
Lækur

Laus staða leikskólakennara
Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ

Forfallakennari í Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

Leikskólakennari í Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg

Sérkennsla/atferlisfræðingur í Ægisborg
Leikskólinn Ægisborg

Leikskólakennari/leiðbeinandi í Ægisborg
Leikskólinn Ægisborg

Sérkennsla í leikskólanum Heiðarborg
Leikskólinn Heiðarborg