
Deildarstjóri
Viltu vera með í að móta framtíðina í Mánalandi?
Leikskólinn Mánaland leitar að metnaðarfullum og drífandi deildarstjóra til að bætast í okkar öfluga hóp.
Ráðið verður í fleiri en eina stöðu.
Ef þú hefur brennandi áhuga á leikskólastarfi, vilt hafa raunveruleg áhrif og starfa í alþjóðlegu og lifandi samfélagi, þá er Mánaland staðurinn fyrir þig.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á því að faglegt starf á deild sé í samræmi við aðalnámskrá leikskóla og stefnu skólans
- Umsjón og ábyrgð á skipulagi, framkvæmd og mati á deildum í samráði við aðra stjórnendur
- Skipulag samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl
- Vinnur að uppeldi og menntun barna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar
- Þátttaka í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaranám og leyfisbréf til kennslu
- Farsæl reynsla af starfi á leikskóla
- Reynsla af stjórnun er kostur
- Jákvæðni, sjálfstæði og sveigjanleiki
- Opið hugarfar í tengslum við þróun skólastarf og breytingar
- Áhugi á að vinna skemmtilegt starf með börnum
- Rík færni til samstarfs og samskipta
- Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli
- Almenn góð tölvukunnátta
- Hreint sakavottorð skv. lögum um leikskóla
Leikskólakennarar starfa samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, skólastefnu sveitarfélagsins sem og öðrum stefnum sveitarfélagsins sem í gildi eru á hverjum tíma og við eiga.
Auglýsing birt29. apríl 2026
Umsóknarfrestur13. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Ránarbraut 7, 870 Vík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Deildarstjóri á deild yngstu barna
Núpur

Deildarstjóri í Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús

Mánahvoll - deildarstjóri
Garðabær

Skólastjóri Grunnskóla Bolungarvíkur
Bolungarvíkurkaupstaður

Deildarstjóri kennslu óskast
Grunnskólinn á Hellu

Deildarstjóri við leikskólann Klettaborg
Borgarbyggð

Deildarstjóri við leikskólann Eyrarvelli, Neskaupstað
Leikskólinn Eyrarvellir

Sviðsstjóri náms- og kennsluþjónustu
Háskólinn á Akureyri

Deildarstjóri í Landakotsskóla
Landakotsskóli

Kennari á yngstastigi í Árbæjarskóla frá hausti 2026
Árbæjarskóli

Heimilisfræðikennari óskast til starfa í Árbæjarskóla
Árbæjarskóli

Deildarstjóri
Leikskólinn Tjörn