

Breiðholtslaug-sundlaugarvörður 100%
Sundlaugarvörður í Breiðholtslaug
Breiðholtslaug auglýsir eftir sundlaugarverði í 100% starfshlutfall.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með baðvörslu kvenna.
Umsjón með öryggi sundlaugargesta í og við laug.
Taka á móti gestum og veita upplýsingar um þjónustuna.
Leiðbeina gestum eftir því sem við á.
Eftirfylgni með umgengnisreglum.
Eftirlit með gæðum laugarvatns.
Umsjón með hreinlæti í og við laug.
Hæfniskröfur
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
Gerð er krafa um íslenskukunnáttu á stigi A1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum, sjá evrópska tungumálarammann
Umsækjendur verða að eiga gott með að umgangast fólk, hafa góða þjónustulund og vera stundvísir.
Umsækjendur þurfa að standast hæfnispróf laugarvarða sbr. reglugerð fyrir sundstaði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar
Starfshlutfall 100 %
Umsóknarfrestur 29.09.2022
Ráðningarform Helgar, dag og kvöldvinna.
Nafn sviðs Íþrótta- og tómstundasvið











