
Hnit Artelia
Hnit Artelia er staðsett á Háaleitisbraut 58-60 í Reykjavík. Hjá fyrirtækinu starfa nú tæplega 50 starfsmenn, sem saman móta samheldinn hóp sérfræðinga sem saman takast á við fjölbreytt verkefni. Fyrirtækið er hluti af Artelia Group, sem er alþjóðleg verkfræðistofa með yfir 11.000 starfsmenn, þar af 1.750 á norðurlöndunum. Samstarf og samlegð með skrifstofum erlendis gefur starfsmönnum tækifæri til að koma að spennandi verkefnum á erlendri grundu, og tengjast öðrum starfsstöðvum í verkefnum og þekkingarmiðlun.

BIM teymið stækkar – tvær stöður í boði
Viltu taka þátt í að móta framtíðina í stafrænni hönnun? Við hjá Hnit Artelia erum að stækka og leitum að metnaðarfullum einstaklingum til að styrkja okkar stafrænu vegferð. Við leitum að fólki í tvö ólík en tengd hlutverk á sviði BIM og ACC (Autodesk Construction Cloud).
Helstu verkefni og ábyrgð
Hlutverkin sem um ræðir:
1. BIM Sérfræðingur (BIM Specialist)
- Uppbygging, þróun og innleiðing BIM-ferla í takt við ISO 19650 og ISO 27001.
- Umsjón með sameiginlegu gagnasvæði (CDE), uppsetning verkefnavefa, notendastýring og rýniferlar í ACC.
- Veita hönnuðum og verkefnastjórum tæknilega ráðgjöf og stuðning.
- Umsjón með stöðutöku verkefna (t.d. stöðu RFI og upplýsingaflæðis).
- Þátttaka í þróunar- og nýsköpunarverkefnum tengdum stafrænum lausnum til að auka skilvirkni í hönnun.
2. BIM Hönnuður (BIM Modeler)
- Samræming og umsýsla BIM-líkana í fjölbreyttum verkefnum.
- Umsjón með gæðamálum líkana og árekstrargreiningum.
- Vinna þétt með hönnuðum í Revit, ACC og öðrum BIM hugbúnaði, t.d. uppsetning módela, tengingar við skýjalausnir og umsjón með fjölskyldum og teiknirömmum.
- Þátttaka í þróunar- og nýsköpunarverkefnum tengdum stafrænum lausnum til að auka skilvirkni í hönnun.
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingum sem
- Hafa menntun við hæfi, t.d. í verkfræði, tæknifræði, byggingafræði, tækniteiknun, eða sérhæft BIM-nám.
- Hafa góða þekkingu á BIM-hugbúnaði og skilning á aðferðafræði BIM og gagnaskiptum.
- Búa yfir frumkvæði og vilja til að læra nýja hluti.
- Hafa skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Búa yfir mikilli samskipta, skipulags- og samvinnuhæfni
- Hafa jákvætt viðhorf, frumkvæði og lausnamiðaða nálgun
- Búa yfir góðri kunnáttu í íslensku eða ensku; kunnátta á norðurlandatungumáli er kostur
Auglýsing birt15. maí 2026
Umsóknarfrestur1. júní 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Háaleitisbraut 58-60 58R, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (10)

Einingaverksmiðjan leitar að reynslumiklum tækniteiknara
Einingaverksmiðjan

Sérfræðingur í framkvæmdaeftirliti á sviði byggðatækni
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Sérfræðingur við vega-, gatna- og stígahönnun
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Sérfræðingur við hönnun veitukerfa
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Hönnuður í fjölbreytt verkefni á sviði samgangna
Hnit Artelia

Verkefnastjórnunarsvið
Stólpi

Hönnuður / Tæknimaður
Glóra ehf

Tækniteiknari
VSB verkfræðistofa

Hönnuður lagna- og loftræsikerfa
VSB verkfræðistofa

Hönnuður á byggðatæknisviði
VSB verkfræðistofa