
Sómi
Bjarni Sveinsson og Sigrún Hjaltalín stofnuðu Sóma 1978 og sérhæfðu sig í hamborgurum til að byrja með. Þar sem örbylgjuofnar voru þá af skornum skammti voru borgararnir steiktir að morgni og svo brunaði Bjarni með þá út svo hægt væri að selja þá heita í hádeginu. Í kjölfarið komu svo samlokurnar, t.d. með rækjusalati, hangikjöti og roastbeef, sem Íslendingar tóku fagnandi og hafa borðað með bestu lyst í áratugi. Nú starfa um 100 manns hjá Sóma sem tryggja að hinir kröfuhörðu viðskiptavinir okkar um land allt fái nýsmurðar samlokur á hverjum degi og fleira gott að borða hvar og hvenær sem er.

Bílstjóri - Sölufólk Sómi
Sómi ehf. leitar af öflugum einstakling til að sinna dreifingu og framstillingu á vörum fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu. Mikil áhersla er lögð á góða hæfni í mannlegum samskiptum, íslensku- eða enskukunnáttu og samviskusemi.
Vinnutími er frá 5:00 – 12:00 alla virka daga og annan hvern laugardag.
Menntunar- og hæfniskröfur
Gild ökuréttindi
Góð íslensku- eða enskukunnátta er skilyrði
Reynsla af akstri
Gerð er krafa um sterka öryggisvitund, góða ástundun og samviskusemi
Heiðarleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
Gott heilsufar
Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu hjá Sóma
Kostur ef viðkomandi er reyklaus
Helstu verkefni og ábyrgð
Dreifing á vörum
Uppröðun og framstillingar á vörum
Samskipti við starfsfólk verslana
Önnur tilfallandi verkefni
Fríðindi í starfi
Matur á vinnutíma
Auglýsing birt18. september 2023
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Gilsbúð 9, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiHeiðarleikiReyklausSamviskusemi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Það á að vera gaman í vinnunni...
Takk ehf

Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR

Icewear Goðafossi - Sölufulltrúar
ICEWEAR

Vaktstjóri í verslun
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Ert þú hress og hefur gaman af sölu og samskiptum?
Happdrætti Háskóla Íslands

Lagerstarfsmaður óskast
Hreinlætislausnir Áfangar ehf.

Tímabundið starf í ELKO Lindum yfir jólin
ELKO

Sölufulltrúar í hlutastarf - stjórnaðu eigin vaktaplani
Símstöðin ehf

Þjónustufulltrúi í vöruhúsi
Aðföng

Mandarínmælandi sölufulltrúi / Mandarin Speaking Sales Representative
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Part Time Sales Assistant
Sports Direct Lindum

Jólaálfar óskast á sölubás í Kringlunni í desember
Óskaskrín