
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili er stofnun í eigu Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar.
Á Höfða eru 73 íbúar í hjúkrunarrýmum , auk þess er tvö hvíldarými. Á heimilinu eru einstaklingsíbúðir, hjónaíbúðir og tvískiptar hjúkrunaríbúðir.
Í hinu sameiginlega rými hússins er m.a. eldhús, matsalur, samkomusalur, herbergi fyrir starfs- og sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, hárgreiðslu, fótsnyrtingu, þvottahús, endurhæfingarrými og skrifstofur. Þá er sérstakt rými fyrir dagdvöl þar sem eru 25 rými. Tvær lyftur eru í húsinu og neyðarkallkerfi úr öllum íbúðum og vistarverum. Ágætt útivistarsvæði er við Höfða; stór lóð með göngustígum og setbekkjum Útsýni frá Höfða er mjög fallegt hvert sem litið . Gott er að fara í gönguferðir á Sólmundarhöfða, niður á Langasand eða upp í skógræktarsvæði Akurnesinga. Fyrir utan dvalarheimlið stendur listaverkið „Grettistak“ eftir Magnús Tómasson.

Bílstjóri
Hjúkrunar-og dvalarheimilið Höfði auglýsir laust til umsóknar 100% starf bílstjóra.
Um er að ræða akstur fyrir ferðaþjónustu eldra fólks og fatlaðs fólks, akstur í og úr dagdvöl sem og annan tilfallandi akstur fyrir heimilið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Akstur þjónustuþega til og frá dagdvöl, heimili, þjónustuúrræðum eða öðrum stöðum samkvæmt skipulagi.
- Aðstoð við þjónustuþega við að komast örugglega inn og út úr bifreið.
- Aðstoð við notkun hjálpartækja, svo sem göngugrinda, hjólastóla og annarra stuðningstækja eftir þörfum.
- Tryggja öryggi farþega í akstri, meðal annars með réttri notkun öryggisbelta, hjólastólafestinga og annars öryggisbúnaðar.
- Sýna þjónustuþegum virðingu, þolinmæði og hlýlegt viðmót.
- Ábyrgð á daglegri skipulagningu aksturs og akstursáætlana, þar á meðal röðun ferða og tímasetninga.
- Vera í góðu samstarfi við starfsfólk dagdvalar, aðstandendur og aðra sem koma að þjónustu við einstaklinginn.
- Halda bifreið snyrtilegri og ganga frá henni að loknum akstri.
- Fylgjast með ástandi bifreiðar og láta vita ef þörf er á viðhaldi, viðgerð eða þrifum.
- Aðstoðar umsjónarmann fasteigna við tilfallandi verkefni þegar tími gefst.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapróf D1 er skilyrði.
- Gilt ökuskírteini og góð aksturshæfni.
- Reynsla af akstri í ferðaþjónustu, akstri með eldra fólk eða fatlað fólk er kostur.
- Rík þjónustulund, hlýlegt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Þolinmæði, ábyrgðarkennd og færni til að bregðast við ólíkum aðstæðum.
- Stundvísi, áreiðanleiki og skipulögð vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta.
- Þekking á öryggi farþega, notkun öryggisbúnaðar og meðhöndlun hjálpartækja er kostur.
- Góð tölvukunnátta, færni til að setja upp og vinna með akstursskipulag.
- Hreint sakavottorð.
Auglýsing birt5. maí 2026
Umsóknarfrestur26. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sólmundarhöfði 5, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiHreint sakavottorðMannleg samskiptiÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagÞjónustulundÞolinmæði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Steypubílstjóri í Helguvík
Steypustöðin

Bifreiðastjóri í sumarvinnu
Prentmet Oddi ehf.

Ísafjörður - Bílstjóri í sumarstarf
Pósturinn

Fjarðabyggð - Austurland: Meiraprófsbílstjóri óskast á ruslabíl/krókabíl(C driver wanted)
Íslenska gámafélagið ehf.

meiraprófs bílsstjóri
Íslandsfrakt ehf.

Meiraprófsbílstjóri - sumarstarf
Fóðurblandan

Starf í vöruhúsi
GÓRILLA VÖRUHÚS

Bílstjóri á hálendisrútuna - sumarstarf
Icelandia

Meiraprófsbílstjóri - Höfuðborgarsvæðið
Terra hf.

Meiraprófsbílstjóri ásamt öðrum tengdum störfum
G.G. lagnir ehf.

Cleaning Camper Vans
Campeasy

Meiraprófsbílstjóri
Raftækjalagerinn