
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík.
Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn

Steypubílstjóri í Helguvík
Steypustöðin í Helguvík leitar að sterkum og jákvæðum einstakling í fjölbreytt starf. Ef þú ert með frumkvæði og getur unnið vel undir álagi, gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.
Starfið felst að mestu leyti í akstri steypubíls, og því eru meiraprófsréttindi (flokkur C og CE) lágmarkskrafa. Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að bætast í okkar góða teymi. Þú þarft að vera tilbúinn til að takast á við nýjar og fjölbreyttar áskoranir í góðum hópi.
Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Útkeyrsla steypu
- Dæling á steypu
- Samskipti við viðskiptavini á verkstað
- Umsjón með steypubíl
- Umsjón með steypudælu
- Umjón með hjólaskóflu
- Vera vakandi yfir gæðum framleiðsluvöru
- Önnur tilfallandi störf í samstarfi við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gilt meiraprófsréttindi C og CE
- Góð íslenskukunnátta kostur
- Góð enskukunnátta skilyrði
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Eftirfylgni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Mikil færni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
- Hádegismatur
- Fjölbreytt verkefni
- Námskeið og fræðsla
- Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
- Líkamsræktarstyrkur
Auglýsing birt5. maí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Berghólabraut 9, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
Meirapróf CSamviskusemiÚtkeyrsla
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Hafsport leitar eftir bifvélavirkja / vélvirkja
Hafsport ehf.

Starfsmenn í framleiðslu og uppsetningar
Signa ehf

Við óskum eftir stálsmið & vélvirkum til að starfa með okkur.
Sjóstál ehf.

Reykjavík: Bílstjóri á tunnuþvottabíl (C réttindi)
Íslenska gámafélagið ehf.

Bílstjórar - FULLT STARF
Póstdreifing ehf.

Viðgerðarmaður
Vélavit ehf

Lyftaramaður
Smyril Line Ísland ehf.

Meiraprófsbílstjóri óskast Framtíðarstarf.
Jarðtækni

Bílstjóri í flotdeild
Steypustöðin

Campervan Mechanic
Indie Campers

Stálsmiðir og Suðumenn
Stáliðjan ehf

Rafvirkjar - Rafvirkjanemar
Múltíverk ehf