Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Bílastæðaþjónusta Keflavíkurflugvallar

Við leitum að þjónustulunduðum og glaðlyndum einstaklingi sem hefur góða samskiptahæfileika, lipra og þægilega framkomu og getu til að vinna undir álagi. Helstu verkefni eru aðstoð við farþega og viðskiptavini á bílastæðum, símsvörun og tölvupóstsamskipti, tilfærsla á ökutækjum auk þess að vera með almennt eftirlit á svæðinu. Um er að ræða framtíðarstarf og unnið á 5-5-4 vaktakerfi.

Hæfniskröfur

  • Aldurstakmark 20 ár

  • Bílpróf á beinskipta bíla

  • Meirapróf og vinnuvélaréttindi er kostur

  • Þjónustulipurð og góð samskiptahæfni

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku

  • Sjálfstæð vinnubrögð

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Freyja Másdóttir hópstjóri bílastæðaþjónustu í gegnum netfang [email protected]

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Auglýsing birt7. ágúst 2025
Umsóknarfrestur18. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar