
Lotus Car Rental ehf.
Lotus Car Rental er öflug og ört stækkandi bílaleiga staðsett í Reykjanesbæ. Lotus Car Rental var stofnað árið 2014 og leggur mikið upp úr framúrskarandi þjónustu og góðu starfsumhverfi

Bílamálari / Bílasmiður/ Réttingar/ Bílaréttingar
Lotus Car Rental óskar eftir að ráða hressan, metnaðarfullan og stundvísan starfskraft á réttinga- og sprautuverkstæði okkar að Lyngási 15, Garðabæ.
Um er að ræða fullt framtíðarstarf í góðum og samheldnum hópi starfsmanna þar sem lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð, góða liðsheild og jákvætt starfsumhverfi. Starfið hentar einstaklingi sem hefur áhuga á bifreiðum, vinnur af nákvæmni og leggur metnað í að skila vönduðu verki.
Við hvetjum einnig nema í bílgreinum og þá sem eru að ljúka námi í faginu til að sækja um. Við tökum vel á móti fólki sem er að stíga sín fyrstu skref í greininni og bjóðum góða leiðsögn reyndra fagmanna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Undirbúningur fyrir málun
- Réttingar og sprautun bifreiða
- Samsetning bifreiða
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af störfum í bílgreinum er skilyrði
- Sveinspróf í bifvélavirkjun, bifreiðasmíði eða bílamálun er mikill kostur
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af CABAS
- Stundvísi
- Jákvæðni, áreiðanleiki, metnaður og ábyrgð eru eiginleikar sem við leitum að
Auglýsing birt31. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaValkvætt
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngás 15, 210 Garðabær
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í bifreiðaskoðun Sauðárkróki
Frumherji hf

Starfsmaður í bílarèttingu
Réttverk ehf.

Starfsmaður í tjónadeild
Vélrás

Bílamálari/Bifreiðasmiður
Bílasprautun Magga Jóns ehf.

Ertu öflugur skipuleggjandi sem kann að leiða fólk og halda mörgum boltum á lofti?
Slippurinn Akureyri ehf

Skoðunarmaður óskast !
Tékkland bifreiðaskoðun

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates

Armur ehf. óskar eftir starfsfólki
Armur ehf.

Stöðvarstjóri á Selfossi
Frumherji hf

Bílamálari
Toyota

Bifreiðasmiður/bílamálari/bifvélavirki
Réttingaverkstæði Jóa

Starfsmaður óskast á sprautuverkstæði – massa, bóna og korna bíla
Lotus Car Rental ehf.