
Monkeys & Kokteilbarinn
Monkeys er staðsettur við Klapparstíg 28-30 í Hjartagarðinum. Gengið er inn í hlýlegt, litríkt og spennandi umhverfi þar sem gestir geta notið framandi matar.
Staðurinn er smáréttastaður með mikið úrval framandi rétta sem eru undir áhrifum frá Suður ameríku og Asíu. Mikil áhersla er á gott úrval léttvína í glasatali og þá sér í lagi freyðandi vín frá öllum heimshornum ásamt frábærum kokteilum.
Matargerðin okkar er byggð á hágæða íslensku hráefni með brögðum og áhrifum frá Suður-Ameríku og Asíu. Með því að flétta saman aldagamla asíska eldunartækni og kraftmikil suður amerísk krydd við fyrsta flokks íslenskt hráefni, sköpum við upplifun sem er í senn bragðmikil og framandi.
Mikið úrval er af girnilegum steikum, grilluðum í Josper kolaofninum ásamt ýmis konar fiskréttum og skelfisk. Smáréttir og sushi skipa einnig mikilvægan sess á matseðlinum auk þess sem hann hefur að geyma spennandi grænmetisrétti og ómótstæðilega eftirrétti.
Barþjónn Monkeys/Kokteilbarinn
Við erum að leitast eftir hressum og lífsglöðum kokteilbarþjónum til að ganga til liðs við barteimið okkar.
Reynsla æskileg en ekki skilyrði. Ef þú ert metnaðarfullur og ófeiminn einstaklingur og langar að vinna á líflegum og skemmtilegum bar/veitingarstað þar sem kokteilar og kampavín fljóta um húsið í geggjaðari stemningu þá erum við að leita af þér !
Auglýsing birt4. september 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Klapparstígur 28, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
BarþjónustaMetnaðurÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Gestgjafar Sky Lagoon/Hosts at Sky Lagoon
Sky Lagoon

Morgunverðarþjónn/ Breakfast Attendant
Center Hotels

JOIN OUR TEAM – WE'RE HIRING!
Skalli Bistro

Aðstoðarfólk í eldhús - Sóltún Sólvangi í Hafnarfirði
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Samlokumeistari Subway Akureyri
Subway

Starfsmaður í þrif í veitingasal IKEA
IKEA

Þjónar á BRASA veitinga- og viðburðarstaður (Hlutstarf)
Brasa

Þjónn með reynslu
Hofland eatery

Barþjónn óskast
EIRIKSSON BRASSERIE

Þjónustusnillingur í afgreiðslu!
UMAMI

Samlokumeistari Subway
Subway

F&B department: Servers / Bartenders / Baristas
The Reykjavik EDITION