
Apotek kitchen + bar
Apotek kitchen +bar er staðsettur á einu fallegasta horni Reykjavíkur í Austurstræti 16.
Við erum “casual/smart” staður þar sem boðið er upp á ljúffengar veitingar í líflegri stemningu og flottu umhverfi.
Matseðillinn er skemmtileg blanda af íslensku og evrópsku eldhúsi með funheitu argentísku grilli. Fjöldi smárétta er á matseðlinum sem mælt er sérstaklega með að gestir smakki og njóti saman.
Á Apotekinu er lifandi kokteilbar þar sem verðlaunaðir „apótekarar“ hrista saman spennandi kokteila – við allra hæfi – örvandi, róandi og jafnvel verkjastillandi.
Hönnun staðarins var í höndum Leifs Welding & Brynhildar Guðlaugsdóttur. Útgangspunkturinn var að halda heiðri hússins á lofti og gera byggingunni og sögu hennar hátt undir höfði. En á sama tíma að skapa nútímalegt, skemmtilegt og afslappað andrúmsloft. Langstærstur hluti húsgagna og innréttinga voru einnig hannaðir af tvíeykinu og smíðaðir á Íslandi.

Barþjónar í fullt starf :)
Apotek kitchen + bar leitar að hressum og skemmtilegum
barþjónum í fullt starf.
Reynsla er æskileg en jákvæðni, vinnugleði og dugnaður er skilyrði.
Leitum af fólki 18 ára og eldri.
Ef þú vilt slást í okkar frábæra hóp endilega sendu ferilskrá á [email protected], merkt "barþjónn".
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 551-0011.
Auglýsing birt18. september 2023
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Austurstræti 16, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (11)

Þjónustustjarna á OCHE 🎯
Oche Reykjavik

Gestgjafar Sky Lagoon/Hosts at Sky Lagoon
Sky Lagoon

Morgunverðarþjónn/ Breakfast Attendant
Center Hotels

JOIN OUR TEAM – WE'RE HIRING!
Skalli Bistro

Þjónar á BRASA veitinga- og viðburðarstaður (Hlutstarf)
Brasa

Þjónn með reynslu
Hofland eatery

Barþjónn óskast
EIRIKSSON BRASSERIE

Þjónustusnillingur í afgreiðslu!
UMAMI

F&B department: Servers / Bartenders / Baristas
The Reykjavik EDITION

Þjónn í hlutastarf
Sumac Grill + Drinks

Kaffibarþjónn
Starbucks Iceland