NPA Setur Suðurlands ehf.
NPA Setur Suðurlands ehf.

Áhugavert starf aðstoðarmanns í Reykjavík

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru helstu verkefni að aðstoða skemmtilegan mann á besta aldri við athafnir daglegs lífs.

Viðkomandi er fjölskyldumaður og snýr aðstoðin einnig að aðstoð við fjölskylduna sem er einstaklega fjörug og skemmtileg og aldrei leiðinlegt í kring um þau.

Starfið er að mestu unnið inni á heimili notandans auk þess að fylgja honum í öllum sínum ferðum og verkefnum utan heimilisins.

Staðan sem um ræðir er 90% afleysingarstarf í 1 ár frá og með 1.júní 2026, með möguleika á framlengingu.

Unnið er á vöktum og eru laun greidd skv. sérkjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Samtaka atvinnulífsins/Eflingar.


Skilyrði að umsækjendur séu íslenskumælandi.

Hæfniskröfur
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Þolinmæði og umburðarlyndi
• Framtakssemi og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Jákvæðni og vilji til að taka leiðsögn
• Sveigjanleiki og umburðarlyndi fyrir verkefnum dagsins
• Menntun og/eða reynsla af vinnu með fötluðum kostur en ekki skilyrði

Helstu verkefni
• Styðja þjónustuþega við að lifa sjálfstæðu og innhaldsríku lífi

Umsækjendur þurfa að framvísa sakavottorði og hafi gild ökuréttindi.


Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. júní 2026.

Nánari upplýsingar um störfin gefa Hafdís Bjarnadóttir s: 510 0921, [email protected] og Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir s: 510 0922, [email protected].

Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur1. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar