Tasty
Tasty
Tasty

Afgreiðsla og grill

Við á Tasty erum að leitast eftir að bæta við okkur rétta fólkinu í fullt starf / aukavinnu / hlutastarf hjá okkur, í Skútuvogi og Borg29 ásamt matarbílnum okkar.

Allskonar vinnutímar í boði, hvort það sé í hádeginu, kvöldin eða um helgar eða fullu starfi.

Okkur vantar einhverja snillinga sem eru áreiðanlegir og með góða þjónustulund, með frumkvæðni í starfi, sem geta unnið undir álagi þegar það á við, hvort sem það er í afgeiðslu eða á grilli. Íslensku kunnátta skilyrði og kunnátta á Dineout sölukerfið er kostur ásamt bílprófi.

Endilega takið fram hvaða starf óskað er eftir.

Okkur vantar í eftirfarandi stöður:

Vaktavinnu (2-2-3) - Fullt starf

Óskum eftir vönum grillara í starf hjá okkur, þarf að geta unnið undir álagi þegar það á við.

Dagvakt 09:30-14:00 alla virka daga (Skútuvogi og Borg29 í Borgartúni)

Óskum eftir að ráða manneskju sem getur tekið hádegin með okkur í afgreiðslu og léttum almennum eldhússtörfum og þrifum. Æskilegt er að viðkomandi kunni á Dineout sölukerfið og talar íslensku.

Kvöldvakt 17:00 - 21:30 virka daga (Borg29 í Borgartúni)

Óskum eftir að ráða manneskju í aukavinnu sem getur stokkið inn og tekið einhver kvöld með okkur og séð um afgreiðslu ásamt léttum almennum eldhússtörfum og þrifum. Æskilegt er að viðkomandi kunni á Dineout sölukerfið og talar íslensku og ensku.

Auka fólki um kvöld og helgar (Skútuvogi- Borg29 - Matarbíll / Grillveislur)

Óskum eftir grillurum í aukavinnu fyrir komandi sumar, þurfa að geta unnið undir álagi og verið með bílpróf.

Helstu verkefni og ábyrgð

Afgreiðsla & þjónusta við viðskiptavini

Eldhússtörf

Almenn þrif / uppvask

Vörumóttaka

Undirbúningur, frágangur á vakt

Vörumóttaka

Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

Reynsla skilyrði

Bílpróf

Kunátta á Dineout sölukerfið 

Auglýsing birt17. febrúar 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 29, 105 Reykjavík
Skútuvogur 13, 104 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar