

Afgreiðsla í verslun og kaffihúsi
Grund hjúkrunarheimili leitar að jákvæðum og glaðlyndum starfsmanni til að taka á móti og afgreiða íbúa og gesti á nýju kaffihúsi heimilsins. Í starfinu felst almenn, dagleg umsjón með kaffihúsi og verslunarhorni, áfyllingar á bakkelsi og vörum, afgreiðsla, frágangur og þrif.
Um er að ræða hlutastarf þar sem starfshlutfall fer eftir samkomulagi.
Vinnutími er frá 10:30 - 17.30, opnunartími er frá 11-17 alla daga vikunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Jákvæðni
- Skipulagsfærni
- Góð samskiptafærni
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Þjónustulund
- Íslenskukunnátta
- 20 ára aldurstakmark
Fríðindi í starfi
- Aðgengi að heilsueflingarstyrk
- Stytting vinnuvikunnar
- Öflugt starfsmannafélag
- Mötuneyti
- Aðgengi að fræðslu og námskeiðum.
Greitt er eftir kjarasamningi Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og Sameykis
Á Grundarheimilunum vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð. Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Rakel Rós Geirsdóttir, deildarstjóri eldhúsa
Íslenska










