

Afgreiðsla í verslun
Klukkan úra- og skartgripaverslun leitar að starfsmanni í verslun.
Í Kringlunni og á Nýbýlavegi 10
Starf 30-80% starfshlutfall - Hlutfall er umsemjanlegt
Um ræðir nokkur stöðugildi.
Við leitum að jákvæðum, þjónustulunduðum og duglegum starfsmanni til að sinna afgreiðslu og sölustarfi ásamt því að taka til pantanir viðskiptavina. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt.
Klukkan er fjölskyldufyrirtæki sem leggur sig fram við að veita framúrskarandi þjónustu ásamt því að reka öfluga vefverslun. Við leitum að drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á úrum, skartgripum og gjafavörum.
Um er að ræða framtíðarstarf
Starfið miðast við vinnu á virkum dögum sem og laugardaga.
Vinnutími helst í hendur við opnunartíma verslanna.
Verslunin er á tveimur stöðum í sérlega glæsilegu verslunarrýmum, annars vegar á Nýbýlavegi 10 og hins vegar í Kringlunni (2 hæð)
Starfsmenn Klukkunnar vinna á báðum starfsstöðum.
- Afgreiðsla
- Sölumennska
- Afgreiða pantanir af vefverslun
- Útstillingar í verslun
- Umsjón vefverslunar
- Almenn tölvukunnátta skilyrði
- Reynsla af Shopify mikill kostur
- Reynsla af samfélagsmiðlum skilyrði (Instagram og Tiktok)
- Þjónustulund
- Söluhæfileikar
- Jákvæðni, drifkraftur og sjálfstæð vinnubrögð
- Áreiðanleiki og stundvísi
- Reynsla í þjónustustörfum
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Hreint sakavottorð
- Að vera dýravinur er mikill kostur












