MÍT menntaskóli í tónlist
MÍT menntaskóli í tónlist
MÍT menntaskóli í tónlist

Áfangastjóri Menntaskóla í tónlist

Menntaskóli í tónlist auglýsir starf áfangastjóra laust til umsóknar. Um er að ræða 50% starf. Meðal helstu verkefna eru yfirumsjón með áfangakerfi skólans, stundatöflugerð, skráning í Innu, námsmat, undirbúningur og úrvinnsla námsvals, en einnig stefnumótun og þróun skólastarfs í samstarfi við aðra stjórnendur skólans. Jafnframt hefur áfangastjóri, í samvinnu við aðstoðarskólameistara, umsjón með námsferlum, námsframvindu og námslokum nemenda við skólann, skráningu einkunna og útgáfu prófskírteina sem og umsóknarvef skólans. Önnur verkefni í samráði við skólameistara.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Leyfisbréf sem kennari
Þekking á íslensku skólakerfi
Áhugi á tónlistarmenntun og tónlistarlífi
Samskiptahæfni og jákvætt viðmót
Góð skipulagshæfni
Víðsýni og áhugi á skólaþróun
Góð tölvukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirumsjón með áfangakerfi skólans
Áfangastjórn
Yfirumsjón með utanumhaldi og skráningu í INNU
Umsjón með námsferlum, námsframvindu og námslokum nemenda
Tengiliður við Advania/Innu
Stundatöflugerð
Námsmat úr öðrum tónlistarskólum og framhaldsskólum
Yfirumsjón með skráningu einkunna í ferilskrá nemenda og prófskírteinum við námslok.
Umsjón með umsóknarvef og innritun í skólann
Undirbúningur og úrvinnsla námsvals
Stefnumótun og þróun skólastarfs
Auglýsing birt21. september 2022
Umsóknarfrestur16. október 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skipholt 33, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almannatengsl (PR)PathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar