
Kópahvoll
Leikskólinn Kópahvoll starfar í tveimur húsnæðum, við Bjarnhólastíg 26 og við Skólatröð í Kópavogi. Í leikskólanum dvelja 134 börn og eru sjö deildir starfandi við skólann. Yngri börnin dvelja í húsnæði við Bjarnhólastíginn sem stendur við Víghólinn sem er friðað svæði og eldri börnin í húsnæði við Skólatröð.
Einkunnarorð skólans eru gleði, samkennd, frelsi og hugrekki og endurspeglast þau í öllu starfi skólans. Leikskólinn Kópahvoll starfar eftir hugmyndafræðinni Uppeldi til ábyrgðar þar sem lögð er áhersla á jákvæð samskipti, ábyrgð, sjálfstæði og virðingu.
Kópahvoll er Réttindaskóli UNICEF og byggir starf sitt á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Í skólanum er lögð rík áhersla á að réttindi barna séu virt í daglegu starfi og að börn fái raunveruleg tækifæri til þátttöku og áhrifa. Lýðræði er leiðarljós í öllu starfi leikskólans og eru börnin hvött til að tjá skoðanir sínar, taka þátt í ákvörðunum sem varða leik þeirra og nám og læra að bera virðingu fyrir sjónarmiðum annarra. Með því að rækta lýðræðisleg gildi, samábyrgð og virka þátttöku er markvisst unnið að því að efla börn sem sjálfstæða, ábyrgða og virka þátttakendur í samfélaginu.

Aðstoðarmatráður
Leikskólinn Kópahvoll óskar eftir því að ráða aðstoðarmatráð til starfa.
Kópahvoll er fjögurra deilda skóli með 74 börnum. Skólinn starfar samkvæmt aðalnámskrá leikskóla með áherslu á leikinn. Við skólann starfar reynslumikill hópur kennara og starfsmanna sem leggur áherslu á að gera góðan skóla betri alla daga.
Leikskólinn er staðsettur á fallegum stað við Víghólinn í Kópavogi sem er friðað leik- og útivistarsvæði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sér um þrif á eldhúsi samkvæmt Gámes þrifaáætlun.
- Sér um þvotta, frágang og heldur þvottahúsi og vélum snyrtilegum.
- Sér um uppvask.
- Heldur kaffistofu snyrtilegri.
- Hefur góða samvinnu við allar deildir leikskólans jafnt börn sem starfsfólk.
- Aðstoðar í þeim verkefnum sem tilfalla í eldhúsi s.s að færa upp matinn, sjá um meðlæti, setja á vagna og fleira.
- Í forföllum matráðs tekur viðkomandi upp starfslýsingu matráðs og tekur einnig fullan þátt í matseld þegar mikið er að gera.
- Starfsfólk í eldhúsi tekur sameiginlega þátt í að láta allt ganga vel upp.
- Sinnir öðrum þeim störfum sem yfirmaður felur honum.
- Gengur frá hreinlætisvörum sem koma frá birgja.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Snyrtimennska.
- Áhugasemi og ábyrgðarkennd.
- Íslensku kunnátta
Fríðindi í starfi
Frítt í sund
Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Bjarnhólastígur 26, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiFagmennskaHreint sakavottorðMannleg samskiptiSamviskusemiSnyrtimennskaStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starf í framleiðslueldhúsi
Kjötkompaní ehf.

Aðstoðarfólk í eldhús - Sóltún í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Matreiðslumaður / Kitchen staff
Apotek kitchen + bar

Aðstoð í eldhúsi
Aðföng

Pizzubakari / Pizza chef
NEÓ Pizza

Chef / Cook / Kokkur
North West Restaurant & Guesthouse

Vanur eldhússtarfsmaður – Experienced kitchen worker
Stúdentakjallarinn

Burger cooking genius!
2Guys

Starfsmaður í mötuneyti ÁTVR
Vínbúðin

Aðstoðarmaður í eldhúsi – heitur matur / Kitchen Assistant – Hot Food Cook (Keflavík)
Tokyo Sushi Reykjanesbæ

We are seeking new cooker to join our team
Flame Restaurant

Starfsmaður í mötuneyti (50% hlutastarf)
Sælkeramatur ehf.