
Meindýravarnir MVE
Meindýravarnir MVE hóf starfsemi sína fyrst árið 1993. Eigendur eru þau Árni Sveinbjörnsson og Elín Björnsdóttir en þau hafa átt og rekið fyrirtækið frá upphafi. Árni hefur starfað sjálfur þar allt frá upphafi og hefur því orðið um 30 ára reynslu í faginu. Reksturinn hefur vaxið jafnt og þétt í gegnum árin og í dag starfa 3 starfsmenn hjá fyrirtækinu með fullgild réttindi í fullu starfi allt árið um kring. En svo eru einn til tveir starfsmenn sem bætast í hópinn yfir sumartímann.
Starfsemin nær yfir allt landið þar sem Meindýravarnir MVE eru með fasta þjónustusamninga við stór sem smá fyrirtæki, sveitfélög og stofnanir í öllum landshlutum. Má þar nefna matvæla-,flutninga-framleiðslu og verslunarfyrirtæki svo og bændur og einstaklinga. MVE leggur áherslu á trúnað,fagleg vinnubrögð og sanngjarnt verð til sinna viðskiptavina. Aukin vakning er hjá rekstraraðilum fyrirtækja í dag að leggja áherslu á reglubundið eftilit hvað varðar meindýravarnir. Það er góð ímynd að tryggja öryggi reksturs og starfsmanna. Einnig er það ákveðinn gæðastimpill út á við til Þeirra viðskiptavina.
Fyrirtækið hefur séð um sótthreinsun í samvinnu við mast og dýralækni með góðum árangri.
Meindýravarnir MVE hafa þjónustað viðskiptavini sína í tæp 30 ár og hafa því áratugareynslu á sviði meindýravarna og garðaúðunar. Alltaf hafa þeir unnið með vönduð og viðukennd efni til að lágmarka skaða náttúrunnar. Allur tækjabúnaður er fyrsta flokks sem tryggir vönduð vinnubrögð og betri árangur.
Starfsmenn fara reglulega á sýningar og fyrirlestra erlendis til að viðhalda faglegri þekkingu og til að fylgjast með þróun í greininni.

Aðstoðarmaður Meindýraeyðis á Akureyri
Okkur hjá Meindýravörnum MVE vantar hraustan einstakling í starf aðstoðarmanns meindýraeyðis.
Tímabil frá 1.maí til 30.ágúst.
Möguleiki er á sveigjanlegum vinnutíma út maí og verður þá fullt starf, svo þetta hentar sérstaklega vel fólki í skóla.
Hæfniskröfur:
Gild ökuréttindi.
Góð íslenskukunnátta.
Enskukunnátta æskileg.
Stundvísi, jákvæðni og heiðarleiki í starfi.
Reynsla af verklegri vinnu æskileg.
Góð mannleg samskipti og þjónustulund.
Geta unnið undir álagi.
Geta unnið sjálfstætt.
Sýnir frumkvæði í starfi.
Reyklaus.
Auglýsing birt26. febrúar 2024
Umsóknarfrestur1. apríl 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Frostagata 1A, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiFrumkvæðiHeiðarleikiJákvæðniReyklausSamviskusemiStundvísiVinna undir álagiÞjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Lagerstarf
Mekka Wines & Spirits hf

Verkamaður - Járnavinna / Metalworker
Íslenska gámafélagið ehf.

Starfsmaður á kassa & áfyllingar
Melabúðin

Sölufólk óskast í verslanir okkar
NTC ehf

Sundlaugarvörður, tímabundið starf
Akraneskaupstaður

Umsjónarmaður fasteigna og tækja.
Bónus

Erum við að leita að þér?
The House of Beauty

Næturvörður óskast / Night guard wanted, 360 Hótel Selfoss
360 Hótel

Hlutastörf í hlaðdeild á Keflavíkurflugvelli
Airport Associates

Verkamaður - flokkun og vinnsla
Terra hf.

KFC í borginni
KFC ehf.

Aðstoðarmaður ráðgjafa viðhalds og mannvirkja
Verksýn