Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Aðstoðarmaður í sjúkra- og iðjuþjálfun - Sóltún í Reykjavík

Við í Sóltúni Reykjavík leitum að metnaðarfullum og jákvæðum aðstoðarmanni í sjúkra og iðjuþjálfun til að ganga til liðs við okkar frábæra teymi í fjölbreytt og gefandi starf. Við bjóðum upp á faglegt starfsumhverfi, öflugt teymi og tækifæri til að hafa jákvæð áhfrif á lífsgæði og vellíðan íbúa í hlýlegu umhverfi þar sem velsæld og virðing eru í fyrirrúmi.

Um er að ræða tímabundið starf í 3 mánuði og 70% starfshlutfall. Vinnutími er frá kl 9:15 til 14:15, alla virka daga. Mikilvægt að viðkomandi geti byrjað strax.

Staðsetning: Sóltúni 2, 105 Reykjavík

Helstu verkefni

  • Leiða morgunstundir á deildum
  • Aðstoða við framkvæmd handverkstíma (kertagerð, myndlist o.fl.)
  • Aðstoða við framkvæmd annarra hópatíma
  • Aðstoða við undirbúning og framkvæmd viðburða
  • Taka þátt í öðrum störfum og aðstoða í verkefnum innan sjúkra- og iðjuþjálfunar eftir þörfum
  • Umhirða og tiltekt í starfsrými sjúkra- og iðjuþjálfunar

Menntunar og hæfniskröfur

  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu samstarfi
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
  • Skipulagshæfni og sveigjanleiki
  • Reynsla af umönnunarstarfi eða félagsstarfi með öldruðum er kostur en ekki skilyrði
  • Góð íslensku kunnátta (C1/C2)
  • Hreint sakavottorð

Starfskjör og fyrirkomulag

  • Launakjör skv. viðeigandi kjarasamningi og SFV
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Íþróttastyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Fatapeningur
  • Hlýlegt og faglegt starfsumhverfi
  • Þverfaglegt samstarf og öflugt teymi

Um Sóltún heilbrigðisþjónustu

Sóltún heilbrigðisþjónusta er leiðandi þjónustuaðili á sviði velferðar- og öldrunarþjónustu á Íslandi. Markmið okkar er að auka velsæld og lífsgæði eldra fólks með fjölbreyttri og heildrænni heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á virðingu, sjálfstæði og stuðning í daglegu lífi.

Undir merkjum Sóltúns eru rekin hjúkrunarheimili í Reykjavík og Hafnarfirði, auk endurhæfingarþjónustu, dagdvalar og heimaþjónustu. Þjónustan er veitt af þverfaglegu teymi fagfólks sem vinnur saman að því að tryggja öryggi, vellíðan og gott líf íbúa og skjólstæðinga.

Hjá Sóltúni er lögð sérstök áhersla á nærandi samfélag þar sem umhyggja, fagmennska og jákvæð samskipti eru í fyrirrúmi. Starfsfólk er stærsta styrkleiki þjónustunnar og því er rík áhersla lögð á gott starfsumhverfi, samvinnu og tækifæri til starfsþróunar.

Auglýsing birt16. september 2026
Umsóknarfrestur7. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Sóltún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar