
Apótekarinn
Apótekarinn er framsækið verslunar- og þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Heilsa og heilbrigði er sérsvið fyrirtækisins og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna með því að bjóða lyf og aðrar heilsutengdar vörur.
Í Apótekaranum færðu lægra verð, persónulega, örugga og faglega þjónustu.

Aðstoðarlyfjafræðingur - Hlutastarf með námi
Apótekarinn óskar eftir Aðstoðarlyfjafræðingum til starfa í Apótekarann Austurveri.
Tilvalið starf með námi.
Vinnutími er önnur hver / þriðja hver helgi með eftirfarandi vinnutíma.
- Föstudagur (eða annar virkur dagur): kl 16-22
- Laugardagur: kl 10-17 / kl 17-22
- Sunnudagur: kl 10-17 / kl 17-22
Starfssvið:
Aðstoðarlyfjafræðingur heyrir undir lyfsöluleyfishafa eða lyfjafræðinga á vakt hverju sinni.
Hæfniskröfur:
- Lokið fjórða námsári í lyfjafræði og starfsnámi í apóteki.
- Skal hafa góða þekkingu á íslenskum lyfjalögum og reglugerðum sem snúa að afgreiðslu lyfja og starfsemi lyfjabúða.
- Brennandi áhugi á þjónustu.
- Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í hóp.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Stefánsdóttir rekstrar- og mannauðsstjóri [email protected]
Apótekarinn leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu á sviði heilsu, heilbrigði og lífsgæða.
Auglýsing birt2. desember 2023
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
MetnaðurSölumennskaÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)



