
Aðstoðarleikskólastjóri
Leikskólinn Ylur auglýsir stöðu aðstoðarleikskólastjóra. Um er að ræða gefandi og skemmtilegt stjórnunarstarf í góðu starfsumhverfi barna og fullorðinna. Tækifæri til faglegar starfsþróunar og þátttaka í þróun á starfinu. Leitað er að leikskólakennara með leiðtogahæfileika sem er tilbúinn að taka þátt í að leiða áfram metnaðarfullt og faglegt starf leikskólans.
Ylur er eins deilda leikskóli í Mývatnssveit en grunnskólinn Reykjahlíðarskóli og leikskólinn Ylur eru samrekin. Í haust er gert ráð fyrir að um 25 börn verði í leikskólanum á aldrinum 1-6 ára, en börn eru tekin inn í leikskólann frá 10 mánaða aldri. Ylur er grænfána- og heilsueflandi leikskóli sem leggur áherslu á heilsueflingu, vináttu, leik og útikennslu. Mikið og gott samstarf er á milli leik- og grunnskólans og íþróttamiðstöðvarinnar í Mývatnssveit.
Um er að ræða spennandi starf fyrir metnaðarfullan leikskólakennara. Leitað er að einstaklingi með góða hæfni og lipurð í samskiptum, með góða þekkingu og reynslu af leikskólastarfi og hæfni til að veita faglega forystu











