
Fellaskóli
Aðstoðarforstöðumaður frístundaheimilisins Vinafell
Fellaskóli starfrækir Frístundaheimilið Vinafell sem er hluti af samþættu skóla- og frístundastarfi fyrir alla nemendur í 1. og 2. bekk. Í Fellaskóla eru meirihluti nemenda fjöltyngd. Vinafell og Fellaskóli leggja áherslu á að nemendum líði vel, þroski hæfileika sýna og taki framförum í íslensku. Mikið samstarf er milli skólans og Vinafells.
Aðstoðarforstöðumaður vinnur náið með forstöðumanni Vinafells og er staðgengill hans. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Vinafells.
Um er að ræða 50% starf. Fullt starf kemur til greina.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning og þátttaka í faglegu frístundastarfi fyrir börn á aldrinum 6 – 7 ára.
- Leiðbeina börnum í leik og starfi.
- Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
- Samráð við fagaðila innan skólans varðandi skipulag fagstarfs í samræmi við áherslur Fellaskóla.
- Þátttaka í skipulagi og umsjón sumarfrístundar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærilegt, eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
- Reynsla af starfi með börnum.
- Reynsla af félags- og tómstundastarfi.
- Reynsla af stjórnun.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Skipulags og stjórnunarhæfileikar.
- Góð færni í samskiptum.
- Almenn tölvu- og samskiptamiðla kunnátta.
- Góð íslenskukunnátta í riti og máli (C1).
Auglýsing birt21. júlí 2026
Umsóknarfrestur3. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Norðurfell 17-19 17R, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (11)

Frístundaheimili - stuðningsfulltrúi og frístundaleiðbeinandi
Seltjarnarnesbær

Umsjónarmaður frístundar á Hvanneyri
Borgarbyggð

Umsjónarmaður frístundar í Borgarnesi
Borgarbyggð

Sérkennari í Kársnesskóla
Kársnesskóli

Umsjónarkennari á miðstig í Kársnesskóla
Kársnesskóli

Hreiðrið ungmennahús leitar að frístundaleiðbeinendum fyrir veturinn 2026-2027
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður í frístundaklúbbinn Kópinn
Sveitarfélagið Árborg

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðinni Óðal
Borgarbyggð

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðvum Kópavogsbæjar
Félkó

Frístundaleiðbeinandi/ráðgjafi með umsjón
Hitt húsið

Lágafellsskóli óskar eftir stuðningsfulltrúum
Lágafellsskóli