

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar - Mörk hjúkrunarheimili - Tímabundið starf
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar
Við leitum að metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi með áhuga á hjúkrun aldraðra, stjórnun og gæðastarfi í starf aðstoðardeildarstjóra.
Lögð er áhersla á góð samskipti innan teymis og við heimilismenn og aðstandendur þeirra. Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra. Hann aðstoðar við skipulagningu hjúkrunar og verklags á deildinni auk innleiðingu nýjunga og umbóta í hjúkrun og stjórnun.
Menntunar- og hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Reynsla af stjórnun kostur
Starfshlutfall er 60 - 100% starf í dagvinnu. Möguleiki á vöktum með.
Um er að ræða tímabundið starf.
Greitt er eftir kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Virðing, Vinátta og Vellíðan eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Þura Björk Hreinsdóttir, Hjúkrunarframkvæmdastjóri
[email protected]
Við hlökkum til að heyra frá þér !
Íslenska