Isavia ANS
Isavia ANS
Isavia ANS

Aðstoð í mötuneyti - tímabundin ráðning

Isavia ANS er með gott mötuneyti á starfsstöð sinni í Reykjavík og við erum að leita eftir kraftmiklum og þjónustulunduðum einstaklingi til að bætast við teymið þar tímabundið til áramóta, með möguleika á framlengingu.

Við leitum eftir einstaklingi sem tekur þátt í því að skapa góða liðsheild, stuðla að uppbyggjandi menningu og góðum samskiptum.

Starfið getur verið 80-100% staða. Vinnutími er frá 7:00 - 14:00 / 15:00.

Ákjósanlegast væri að viðkomandi gæti hafið störf fyrir 1. september 2025.

Isavia ANS er staðsett á Reykjavíkurflugvelli, Nauthólsvegi 66.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð við matreiðslu í samráði við matreiðslumann
  • Framreiðsla á morgunmat
  • Framreiðsla á hádegismat, salatbar og súpu í samráði við matreiðslumann
  • Aðstoð við innkaup í samráði við matreiðslumann
  • Frágangur, uppvask og dagleg þrif í eldhúsi og matsal
  • Áfyllingar á kaffivélar, kæla og annað sem þarfnast áfyllingar
  • Aðstoð við móttöku og frágang á vörum
  • Aðstoð við undirbúning og frágang veitinga á fundum
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Áhugi á fjölbreyttri og hollri matargerð
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Þjónustulund og áhugi á að vinna vel í teymi
  • Reynsla af starfi í mötuneyti eða eldhúsi er kostur
  • Hreint sakavottorð
  • Gott vald á íslensku og/eða ensku
Auglýsing birt11. júlí 2025
Umsóknarfrestur21. júlí 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Nauthólsvegur 66, 102 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.EldhússtörfPathCreated with Sketch.FramreiðslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar