
Mosfellsbær
Mosfellsbær er sjöunda stærsta bæjarfélag á Íslandi með rúmlega 14.000 íbúa. Sveitarfélagið er staðsett í útjaðri höfuðborgarsvæðisins. Mosfellsbær byggir þjónustu sína á áhugasömu og hæfu starfsfólki sem hefur tækifæri til að rækta þekkingu sína og færni í jákvæðu starfsumhverfi. Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Hjá Mosfellsbæ starfa um 1200 starfsmenn.
Fjölskylduvæn og sveigjanleg mannauðsstefna styður við þá hugmyndafræði að Mosfellsbær sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem atvinna og fjölskylduábyrgð fara saman. Mosfellsbær er heilsueflandi samfélag sem miðar að því að þróa samfélagslegan ramma utan um markvissa og heildræna heilsueflingu, en verkefninu er ætlað að ná til allra aldurshópa í samfélaginu, bæði íbúa og starfsmanna.

Aðalbókari óskast á bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar
Fjármála- og áhættustýringarsvið Mosfellsbæjar hefur yfirumsjón með allri fjármálastjórn bæjarins. Sviðið hefur með höndum fjárstýringu, reikningshald og bókhald, yfirumsjón með fjárhagsáætlun, lánastýringu, umsjón með gjaldskrám, innkaup, eftirlit með fjárhagstengdum samningum ásamt fjárhagslegu áhættumati. Á sviðinu starfa fjármálastjóri, verkefnastjóri, innheimtufulltrúi, aðalbókari og bókari. Aðalbókari ber ábyrgð á bókhaldi Mosfellsbæjar, stýrir bókhaldsvinnu sveitarfélagsins, gerð uppgjörs, þróun verkferla og stýring fjárhagsupplýsingakerfa. Fjárhagskerfi Mosfellsbæjar er Microsoft Dynamics 365 Business Central (NAV).
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með öllu bókhaldi Mosfellsbæjar og stofnana bæjarins, eignakerfi, afstemmingum og annarri bókhaldsvinnu.
- Ber ábyrgð á að skipulag bókhalds og vinnubrögð séu í samræmi við lög og viðurkenndar reikningsskilareglur
- Yfirumsjón með skráningu reikninga og samþykktum þeirra
- Yfirumsjón með virðisaukaskattsmálum
- Ýmis uppgjörs- og greiningarvinna
- Gerð rekstraryfirlita, fjárhagsgreininga og skýrslugerð
- Ráðgjöf og stuðningur við notendur fjárhagskerfis
- Samskipti við endurskoðendur vegna ársreiknings Mosfellsbæjar
- Þátttaka í áætlanagerð og innra eftirliti
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðskiptafræðimenntun af fjármála- eða endurskoðunarsviði og/eða meistarapróf í reikningsskilum er skilyrði
- Þekking og reynsla á færslu, skipulagningu og uppgjöri bókhalds er skilyrði
- Þekking á lögum og reglum um bókhald og reikningsskil sveitarfélaga ásamt lögum um virðisaukaskatt og reglum um undanþágur fyrir sveitarfélög er kostur
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Góð tölvukunnátta og færni í Excel er skilyrði
- Góð þekking og reynsla af Dynamics BC (NAV) er kostur
- Reynsla af þróun verkferla og samþættingu Dynamics BC (NAV) við önnur kerfi er kostur
- Samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og lausnamiðuð hugsun
- Nákvæmni í vinnubrögðum og talnagleggni
- Frumkvæði sjálfstæði og skipulagshæfni
- Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg
Auglýsing birt8. desember 2023
Umsóknarfrestur2. janúar 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (2)

