A4
A4
A4

A4 Smáralind - Ert þú öflugur sölufulltrúi?

A4 óskar eftir að ráða kraftmikinn sölufulltrúa í verslun okkar Smáralind.
Helstu verkefni sölufulltrúa er að veita viðskiptavinum góða þjónustu og ráðgjöf, afgreiðsla á kassa, fylla á vörur sem og framstillingar í búðinni.

Um er að ræða fullt starf þar sem unnið er alla virka daga frá 10:00 til 18:00.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni:

  • Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar
  • Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum og afgreiðsla á kassa
  • Önnur almenn verslunarstörf

Hæfniskröfur og reynsla:

  • Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
  • Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
  • Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni
  • Þekking á hannyrðum kostur
  • 18 ára og eldri
  • Íslenskukunnátta

Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að sækja um starfið, óháð kyni.

Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst 2025.

Nánari upplýsingar um starfið veitir verslunarstjórinn Auður í síma 580-0010.

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 140 manns

Auglýsing birt8. ágúst 2025
Umsóknarfrestur18. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar