Árbæjarskóli
Árbæjarskóli

"Á meðan meðbyr blæs gríptu þá þessa gæs"

Við auglýsum eftir umsjónarkennara á yngra stig, metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill vinna í teymi í góðu og jákvæðu umhverfi.

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 700 talsins en skólinn er safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 100 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu í samráði við skólastjórnendur og árgangateymi.
  • Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.
  • Hæfni í samskiptum.
  • Faglegur metnaður.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Auglýsing stofnuð7. maí 2024
Umsóknarfrestur19. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Rofabær 34, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar