Hlutastarf í sal
Óskum eftir starfsmanni í hlutastarf á morgun- og kvöldvaktir á 101 Hótel og afleysingar í sumar.
Um er að ræða lítið "boutique" hótel þar sem starfsfólk vinnur náið saman. Hótelgestir nota barinn mikið, sem og íslendingar bæði í drykk, mat og þar er einnig morgunverðarhlaðborðið alla daga.
Umsækjendur þurfa að hafa reynslu af þjónustustörfum, vera stundvísir, liprir í mannlegum samskiptum, sýna frumkvæði í starfi, tala íslensku og hafa náð 20 ára aldri.
Morgunvaktir
Hlutastarf þar sem unnið er á vöktum frá 6:00-12:00/13:00 um helgar og afleysingar í sumar. Um ræðir ca 30% starfshlutfall með möguleika á hærra hlutfalli.
Kvöldvaktir
Hlutastarf á kvöld- og helgarvöktum, vaktir eru frá 17:00-00:00/01:00 um helgar og afleysingar í sumar. Um er að ræða ca 30% starfshlutfall með möguleika á hærra hlutfalli.
Starfið hentar einstaklega vel fyrir fólk sem hefur gaman af því að vinna í fallegu og skemmtilegu umhverfi.
Ekki hika við að hafa samband ef þú heldur að starfið henti þér.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.