
Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður sem hefur djúpar rætur og 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp spennandi og lífilegan vinnustað þar sem unnið er með verðmætustu vörumerki í heimi. Markvisst er unnið að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsmanna. Sjálfbærnistefnan okkar er metnaðarfull og stikar leiðina að betra samfélagi og eru starfsmenn hvattir til að taka þátt í að fylgja henni eftir, sýna frumkvæði og vinna að sífelldum úrbótum.

Vörumerkjastjóri
Ert þú með brennandi áhuga á markaðsmálum, vörumerkjauppbyggingu og vilt ná árangri með sterkum alþjóðlegum vörumerkjum?
Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi óskar eftir öflugri manneskju í starf vörumerkjastjóra til að leiða uppbyggingu, þróun og sölu vörumerkja fyrirtækisins á íslenskum markaði.
Vörumerkjastjóri gegnir lykilhlutverki í stefnumótun, markaðssetningu, vörustjórnun og viðskiptalegri þróun vörumerkja. Starfið felur í sér náið samstarf við erlenda birgja og samstarfsaðila ásamt sölu-, fjármála-, framleiðslu- og aðfangakeðjuteymum fyrirtækisins.
Við bjóðum fjölbreytt og krefjandi starf í skemmtilegu alþjóðlegu starfsumhverfi þar sem þú færð tækifæri til að þróast í starfi, hafa áhrif og móta framtíð sterkra vörumerkja.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stefnumótun, markaðssetning og uppbygging vörumerkja á íslenskum markaði.
- Gerð og innleiðing markaðsáætlana.
- Skipulagning og framkvæmd markaðsherferða, viðburða og söluhvetjandi aðgerða.
- Vörustjórnun, þróun og hagræðing vöruúrvals ásamt innleiðingu nýrra vara.
- Eftirspurnarspár, birgðastýring og eftirfylgni með vöruframboði í samstarfi við viðeigandi deildir.
- Greining á sölu, markaðshlutdeild, neytendahegðun og þróun markaðar.
- Eftirfylgni með sölu, arðsemi og lykilárangursmælikvörðum vörumerkja.
- Kostnaðar- og fjárhagsáætlanagerð ásamt eftirfylgni með markaðsfjárfestingum.
- Uppbygging og viðhald öflugra samstarfssambanda við erlenda birgja og aðra samstarfsaðila.
- Greining og þróun nýrra viðskiptatækifæra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í markaðsfræði, viðskiptafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af markaðsmálum, vörumerkjastjórnun, vörustjórnun eða sambærilegum verkefnum.
- Góður viðskiptaskilningur og áhugi á rekstri, sölu og markaðsmálum.
- Sterk greiningarhæfni og færni til að nýta gögn við ákvarðanatöku.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að vinna með ólíkum hagsmunaaðilum að sameiginlegum markmiðum.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfni og áreiðanleiki.
- Drifkraftur, frumkvæði og jákvæðni.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
- Góð tölvukunnátta, færni í Excel og hæfni til að tileinka sér ný kerfi og tæknilausnir.
- Reynsla af neytendamarkaði er kostur.
Utworzono ofertę pracy27. November 2026
Termin nadsyłania podań6. December 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Stuðlaháls 1, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
Analiza rynkówMarketingRelacje biznesowe
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (1)
Podobne oferty pracy (6)

Viltu koma íslenskri nýsköpun á framfæri?
KLAK - Icelandic Startups

Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu
Bílaleigan Berg - Sixt

Skapandi markaðsmanneskja - Mótaðu framtíð þekkingar
Háskólinn í Reykjavík

Sérfræðingur // Stafræn markaðssetning
MARS MEDIA

Sérfræðingur í efnisgerð og samskiptum
Advania

Markaðs- og sölustjóri
Forest Lagoon Hotel and Geothermal Spa