Forest Lagoon Hotel and Geothermal Spa
Forest Lagoon Hotel and Geothermal Spa
Forest Lagoon Hotel and Geothermal Spa

Markaðs- og sölustjóri

Vilt þú móta næsta kafla Skógarbaðanna?

Skógarböðin eru einstakt verkefni í þróun þar sem baðlón og hótel skapa saman heildarupplifun. Framundan eru fjölmörg tækifæri til uppbyggingar og vaxtar, og við leitum að kraftmiklum markaðs- og sölustjóra sem vill grípa þau með okkur.

Þú leiðir markaðs- og söluteymið og vinnur náið með öðrum stjórnendum að því að laða að gesti, efla vörumerkið og auka sölu.

Í boði er fjölbreytt og spennandi stjórnunarstarf með ábyrgð og svigrúm til að láta góðar hugmyndir verða að veruleika og hafa raunveruleg áhrif á framtíð Skógarbaðanna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða og efla markaðs- og söluteymið
  • Móta og framkvæma markaðs- og sölustefnu fyrir baðlónið og hótelið
  • Leiða tilboðsgerð, vöruþróun og sókn á nýja markaði
  • Stýra herferðum, efnisgerð og stafrænni markaðssetningu
  • Byggja upp tengsl við ferðaskipuleggjendur, fyrirtæki og samstarfsaðila
  • Halda utan um áætlanir og fjárhagsramma og nýta gögn til að mæla árangur

 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af markaðs- og sölustarfi 
  • Leiðtogahæfni og reynsla af því að stýra teymi
  • Góður skilningur á stafrænni markaðssetningu og söluleiðum
  • Sterkt viðskiptavit, frumkvæði og skipulagshæfni
  • Framúrskarandi samskipta- og samningahæfni og gott vald á íslensku og ensku
  • Reynsla úr ferðaþjónustu, hótelrekstri eða afþreyingu er kostur
Utworzono ofertę pracy11. November 2026
Termin nadsyłania podań1. December 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Skógarböð, 605 Akureyri (Dreifbýli)
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.RzetelnośćPathCreated with Sketch.MotywacjaPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Prawo jazdyPathCreated with Sketch.NiepalącyPathCreated with Sketch.NegocjacjePathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.SprzedażPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe