

Viltu koma íslenskri nýsköpun á framfæri?
KLAK – Icelandic Startups leitar að öflugum markaðsstjóra sem vill efla sýnileika íslenskrar nýsköpunar og hjálpa okkur að ná til næstu kynslóðar frumkvöðla.
Markaðsstjóri ber ábyrgð á markaðs- og kynningarmálum KLAK í samráði við framkvæmdastjóra. Í starfinu felst að efla vörumerki KLAK og sýnileika verkefna þess, miðla árangri starfsins og tryggja skýra og samræmda framsetningu á starfsemi og þjónustu félagsins.
Markaðsstjóri vinnur náið með framkvæmdastjóra og verkefnastjórum og er í samskiptum við frumkvöðla, bakhjarla og aðra samstarfsaðila KLAK.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Þróun, skipulagning og framkvæmd markaðsáætlana fyrir KLAK og einstök verkefni þess.
-
Skipulagning og framkvæmd markaðsherferða til að kynna umsóknartímabil, þjónustu og viðburði.
-
Umsjón með stafrænni markaðssetningu og auglýsingum.
-
Umsjón með vefsíðu og samfélagsmiðlum KLAK, þar á meðal efnissköpun, birtingar og uppfærsla upplýsinga.
-
Uppbygging vörumerkis KLAK og umsjón með ásýnd og kynningarefni.
-
Fréttaskrif, gerð fréttatilkynninga og samskipti við fjölmiðla.
-
Miðlun árangurs úr starfi KLAK og frá frumkvöðlum sem njóta þjónustunnar.
-
Greining og mat á árangri markaðsaðgerða og tillögur að úrbótum.
-
Aðkoma að undirbúningi, kynningu og framkvæmd viðburða í samstarfi við verkefnastjóra.
-
Samstarf við bakhjarla og aðra samstarfsaðila um kynningar og sýnileika.
Menntun, reynsla og hæfni
-
Háskólamenntun í markaðsfræði, viðskiptafræði, almannatengslum eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
-
Reynsla af markaðs- og kynningarmálum, gerð markaðsáætlana og framkvæmd herferða.
-
Góð þekking og reynsla af stafrænni markaðssetningu, samfélagsmiðlum og auglýsingakerfum.
-
Reynsla af efnissköpun og færni í að miðla upplýsingum á skýran og áhugaverðan hátt.
-
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta og framúrskarandi ritfærni.
-
Greiningarhæfni og færni til að nýta gögn við mat á árangri og ákvarðanatöku.
-
Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að vinna með fjölbreyttum hópi fólks að sameiginlegum markmiðum.
-
Sjálfstæði, skipulagshæfni og geta til að fylgja verkefnum frá hugmynd til framkvæmdar.
-
Sköpunargleði, drifkraftur og frumkvæði.
-
Góð tæknifærni og geta til að tileinka sér ný verkfæri og kerfi.
-
Áhugi á nýsköpun og frumkvöðlastarfi. Þekking á íslensku nýsköpunarumhverfi er kostur.
Af hverju KLAK?
Við bjóðum fjölbreytt og skapandi starf í samhentu teymi í Grósku. Hjá KLAK færðu tækifæri til að móta markaðsstarfið, vinna með frumkvöðlum og öflugu tengslaneti og sjá árangur starfsins í nýjum hugmyndum og vaxandi fyrirtækjum.
KLAK styður frumkvöðla frá hugmynd að vexti með viðskiptahröðlum, fræðslu, mentorastuðningi og innlendu og alþjóðlegu tengslaneti.
islandzki
Angielski



