Arion banki
Arion banki
Arion banki

Vörustjóri skjalastýringar

Arion banki leitar að vörustjóra skjalastýringar í nýtt og spennandi starf í einingunni vörustýring og sjálfvirkni í rekstrarumsjón á sviðinu rekstur og menning. Deildin hefur það hlutverk að vörustýra innri kerfum, þjónustu bankans og vinnur náið með öðrum sviðum.

Hlutverk vörustjóra er að bera ábyrgð á mótun og innleiðingu framtíðarsýnar og stefnu fyrir vegferð upplýsinga, vinnusvæða auk starfrænna og handbærra skjala, þvert á öll svið Arion. Vörustjóri leiðir og forgangsraðar verkefnum í nánu samstarfi við hagaðila.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tryggja að raddir viðskiptavina séu hafðar til hliðsjónar í ferlum tengdum vinnu- og viðskiptavinaskjölum
  • Vinna með hagsmunaaðilum og tryggja skýra sýn á upplýsingar og vinnuferla
  • Vinna með upplýsingatæknisviði að skilgreiningu ferla og krafna fyrir hönnun og þróun tæknilausna
  • Setja fram og fylgja eftir mælikvörðum um notkun, gæði og ánægju notenda
  • Tryggja samræmingu í þróun skjala- og vinnusvæða
  • Ber ábyrgð á eftirliti vegna skjala- og vinnusvæða
  • Skipuleggja kynningar og fræðslu til hagaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð reynsla af stýringu verkefna, skipulagningu og framkvæmd
  • Góð leiðtogahæfni, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Þekking og reynsla á fjármálamarkaði er kostur
  • Þekking á skjalamálum, bæði stafrænna og handbærra er kostur
  • Reynsla í að útbúa kynningarefni, koma fram og halda kynningar
  • Áhugi á breytingastjórnun
  • Afburða samskipta- og samvinnufærni og drifkraftur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Utworzono ofertę pracy22. May 2026
Termin nadsyłania podań5. June 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Zdolności kierowniczePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Zarządzanie projektemPathCreated with Sketch.Zarządzanie produktem
Zawody
Tagi zawodowe