Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Verkefnastjóri á skrifstofu námsbrauta í geisla- og lífeindafræði

Laust er til umsóknar 75% starf verkefnastjóra á skrifstofu námsbrauta í geisla- og lífeindafræði innan Læknadeildar Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Um er að ræða tímabundna afleysingu til eins árs.

Verkefnastjóri gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi námsbrautanna og er í nánu samstarfi við námsbrautarstjóra, kennara, nemendur og annað stjórnsýslustarfsfólk. Starfið veitir góða innsýn í háskólaumhverfi og hentar vel einstaklingi sem hefur ánægju af skipulagi, samskiptum og þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg verkefni í tengslum við nám og kennslu, svo sem upplýsingagjöf, afgreiðsla erinda, skjalavarsla og almenn þjónusta við nemendur og kennara

  • Umsjón með kennsluáætlunum og uppgjöri kennslu í samstarfi við fjármálateymi HVS

  • Vinna við stundaskrár, stofubókanir og prófahald

  • Kynningarmál og viðburðir á vegum námsbrautanna

  • Undirbúningur brautskráninga

  • Undirbúningur funda og eftirfylgni mála

  • Skipulagning og umsýsla verklegrar þjálfunar nemenda

  • Eftirfylgni með upplýsingum í kennsluskrá

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Bakkalárpróf sem nýtist í starfi

  • Gott vald á upplýsingatækni og áhugi á að tileinka sér nýjungar á því sviði, meðal annars á sviði gervigreindar

  • Góð samstarfshæfni og rík þjónustulund

  • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð

  • Góð færni í íslensku og ensku

  • Reynsla af sambærilegum verkefnum í háskólaumhverfi er æskileg

Utworzono ofertę pracy21. May 2026
Termin nadsyłania podań29. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Hringbraut 31, 101 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe