Overcast ehf.
Overcast ehf.
Overcast ehf.

Verkefnastjóri í hugbúnaðarþróun

Við leitum að skipulögðum og drífandi verkefnastjóra til að taka þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum hjá Overcast.

Hlutverkið snýr að því að halda utan um verkefni, tryggja gott flæði í samskiptum og styðja teymi og viðskiptavini í gegnum allt verkefnaferlið.

Verkefnastjóri gegnir lykilhlutverki í að skapa yfirsýn, forgangsraða verkefnum og tryggja að upplýsingar, verkefni og ákvarðanir séu skýrar og aðgengilegar öllum sem koma að verkefnum.

Hjá Overcast er unnið að fjölbreyttum vef- og hugbúnaðarverkefnum fyrir ólíka viðskiptavini, ásamt þróun eigin hugbúnaðarlausna. Umhverfið er hratt, fjölbreytt og krefst góðrar yfirsýnar og samskiptahæfni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Halda utan um virk þróunarverkefni og tryggja góða yfirsýn yfir stöðu þeirra

  • Forgangsraða verkefnum í samvinnu við teymi og viðskiptavini

  • Sjá um samskipti við viðskiptavini tengd verkefnum, verkbeiðnum og framvindu

  • Tryggja að verkefni, ákvarðanir og næstu skref séu skráð og aðgengileg

  • Fylgja eftir verkefnum og tryggja framvindu þeirra

  • Skipuleggja og leiða fundi þegar við á

  • Halda utan um verkefni í Asana og tryggja að verkefni séu uppfærð og verkbeiðnum útdeilt.

  • Samræma verkefni og upplýsingaflæði milli teymis, viðskiptavina og annarra hagaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem:

  • er skipulagður og með góða yfirsýn

  • hefur sterka samskiptahæfni

  • er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir frumkvæði

  • hefur áhuga á ferlum, skipulagi og stöðugum umbótum

  • getur unnið við mörg verkefni samhliða

  • á auðvelt með að vinna með ólíkum einstaklingum og teymum

  • hefur góðan almennan tækniskilning og áhuga á hugbúnaðarþróun. 

  • er lausnamiðaður og nær að halda fókus í hröðu og fjölbreyttu umhverfi.

Hæfnikröfur:

  • Að lágmarki þriggja ára reynsla af verkefnastjórnun í hugbúnaðargerð eða sambærilegu tækniumhverfi

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verkefnastjórnunar, verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegt. 

  • Reynsla af vinnu með teymum í hugbúnaðarþróun

  • Góð samskiptahæfni í töluðu og rituðu máli, bæði á íslensku og ensku. 

  • Góð skipulagshæfni og geta til að halda yfirsýn yfir mörg verkefni samhliða

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt frumkvæði og lausnamiðaðri hugsun

  • Þekking á Agile aðferðafræði er kostur

  • Reynsla af verkefnastjórnunarkerfum á borð við Asana eða sambærilegt er kostur

Fríðindi í starfi
  • 30 daga sumarfrí
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Framúrskarandi starfsumhverfi
  • Fjölskylduvænn vinnustaður
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Drykkir og möns á „barnum“
  • Heilsustyrkur
Utworzono ofertę pracy18. May 2026
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.DeterminacjaPathCreated with Sketch.ProfesjonalnośćPathCreated with Sketch.Występy/WykładyPathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.KreatywnośćPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Praca zespołowaPathCreated with Sketch.Zarządzanie projektami IT
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe